w w w . n a m s v e f u r i n n . i s

Umsókn um VeriSign lykil að Námsvefnum

Til þess að geta séð allt það efni sem kennarar hafa lagt inn á Námsvefinn þarf aðgangslykil frá VeriSign. Þessi lykill gerir það að verkum að notandinn þarf ekki að muna aðgangs- og lykilorð. Lykillinn er einnig bundin við þá tölvu sem hann er settur upp á og því er ekki hægt að "lána" vinum og vandamönnum aðganginn sinn.

Smelltu hér eða sláðu inn eftirfarandi slóð í vafrarann þinn:

https://onsite.verisign.com/services/SkyrrNamsvefurinn/digitalidCenter.htm

Athugaðu að upp kemur nýr gluggi, svo þú getur haft þennan glugga opin við hliðina og farið eftir leiðbeiningunum sem koma hér að neðan.

1. Upp kemur eftirfarandi skjámynd:

Smelltu á ENROLL

2. Því næst þarf að fylla út eftirfarandi form og munið að nota ekki sér íslenska stafi. Athugaðu að það þarf að fylla út eftirfarandi þætti:

First Name: Fornafn
Last Name: Eftirnafn eða föðurnafn
Your E-mail Address: Tölvupóstfang
Stada: K ef aðgangur fyrir kennara en annars A
Skoli: Nafn skóla þar sem lykillinn er settur upp + nafn vélar, t.d. Skyrrskolinn - Kennvel1

Einnig þarf að gefa lyklinum lykilorð sem gildir þegar þú sækir hann til VeriSign. Mikilvægt er að skrifa hjá sér þetta lykilorð, því það er skilyrði þess að lykillinn fáist afgreiddur.

Ef þú gleymir að fylla út einhvern reitinn kemur tákn fyrir framan hann sem gefur þér til kynna að eitthvað sé að:

Þegar allt hefur verið fyllt út þarftu að smella á Accept.

Nú kemur upp tilkynning frá vélinni þinni þar sem þú ert beðin(n) um að staðfesta að tölvupóstfangið sé rétt og þú smellir á OK hnappinn.

Næst þarftu að velja svokallað "Security Level":

Þú smellir á Set Security Level .. hnappinn:

Ef þú breytir engu og smellir á Next hnappinn verðurðu ekki beðinn um að slá inn lykilorð fyrir lykilinn þinn í hvert sinn sem þú notar aðganginn að Námsvefnum. Ef þú flytur punktinn í High þarftu að staðfesta með lykilorði í hvert sinn sem þú notar Námsvefinn. Við veljum að breyta ekki neinu og smella á Next. Notendur Námsvefjarins eru hvattir til að nota þessa stillingu:

Að lokum er svo smellt á Finish og þá er ekkert að gera nema bíða eftir að fá tölvupóst  þar sem þér er tilkynnt að búið sé að afgreiða lykilinn fyrir Námsvefinn.

Ef þú hefur hins vegar ákveðið að velja "Security Level High" kemur upp önnur skjámynd:

Þú fyllir úr reitina og smellir síðan á Finish. Athugaðu að í reitinn "Password for" ertu að gefa lyklinum þínum nafn og í reitinn Password skráir þú leyniorð fyrir lykilinn.