![]() |
|
| w w w . n a m s v e f u r i n n . i s | |
Lykillinn sóttur og settur upp
Þegar lykillinn hefur verið afgreiddur færðu tölvupóst þar að lútandi. Þar kemur fram hvað þú þarft að gera til að sækja lykilinn. Það er í stuttu máli gert í þremur þrepum.
1. þrep
Þú ferð á vefsíðuna https://onsite.verisign.com/services/SkyrrNamsvefurinn/digitalidCenter.htm.
2. þrep
Hafðu PIN númerið sem þú fékkst í
tölvupóstinum við höndina, afritaðu það og límdu inn í formið
3. þrep
Fylgdu leiðbeiningunum á síðunni
nákvæmlega þegar þú setur lykilinn upp.
Þú velur PICK-UP ID af síðunni sem kemur upp.
Sláðu inn PIN númerið þitt. Þú getur einnig afritað það úr tölvupóstinum og límt það inn í formið.
Þegar PIN númerið er komið inn í formið skaltu smella á Submit.
Eftir augnablik færðu eftirfarandi skilaboð á skjáinn sem segja þér að lykilinn að Námsvefnum sé kominn á sinn stað. Þar með er þér ekkert að vanbúnaði að byrja að nota hann.