|
Aðalfundur 3F 2006
Boðað er til aðalfundar 3f - félags
um upplýsingatækni og miðlun kl.
16:00 miðvikudaginn 7.júní nk. í húsnæði Kennaraháskóla Íslands fyrir
list- og verkgreinar í Skipholti 37, 3.hæð, stofum L302 og L303.
Vefsíða félagsins er hérna:
http://www.ismennt.is/not/3f
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
i. Formaður félagsins setur fund og tilnefnir fundarstjóra.
ii. Skýrsla formanns.
iii. Lagðir fram reikningar síðasta fjárhagsárs.
iv. Lagabreytingar.
v. Kosning stjórnar.
vi. Kosning endurskoðanda.
vii. Önnur mál.
Í boði félagsins verða léttar veitingar. Í lok fundar er gert ráð
fyrir erindi um tengslanet.
Núverandi stjórn - Sólveig Friðriksdóttir (formaður), Fjóla
Þorvaldsdóttir (gjaldkeri), Salvör Gissurardóttir, Sólveig
Jakobsdóttir og Þorbjörg Garðarsdóttir (meðstjórnendur) - bjóða sig
fram til áframhaldandi stjórnarsetu.
|