Aðalfundur 2004

 

Fundargerð aðalfundar 3F félags um upplýsingatækni og menntun

Fundur haldinn á UT-2004 í Fjölbrautarskóla Garðabæjar þann 5.3.2004

Formaður setti fundinn kl 17.00. Mættir voru 13 manns með stjórnarmeðlimum.

Formaður flutti skýrslu síðastliðins árs.

Þar bar helst til tíðinda fundur kerfisstjóra framhaldsskólanna sem tókst með miklum ágætum. Þar voru mættir um 30 manns.

Til stóð að halda aðra viðburði eins og t.d. samkeppnir um fjarkennslu á framhaldsskólastigi og um samskiptaverkefni á grunnskólastigi. Þessi verkefni komust ekki í framkvæmd.

Lára og Sólveig lásu yfir umsóknir til þróunarsjóðs framhaldsskólanna og fékk félagið laun fyrir.

Reikningar lagðir fram.

Endurskoðað bókhald síðastliðins árs var samþykkt. Illa gengur að eyða þeim peningum sem félagið hefur unnið sér inn. Umræður fóru fram um það hvort ætti að veita styrki t.d. þróunarstyrki úr sjóðnum. Fólk hallaðist frekar að því að halda sjóðnum eins og hann er og grípa til hans þegar gott tilefni gefst til að eyða í þágu upplýsingatækni og menntunar.

Til stóð að veita styrki vegna ráðstefnuþátttöku erlendis en til þess kom ekki.

Stjórn

Formaður lýsti yfir áhuga á áframhaldandi setu sem fundurinn samþykkti. Kolbrún og Lilja sögðu sig úr stjórn. Lilja gerði grein fyrir úrsögninni. Taldi hún stjórnina ekki nógu virka, en lýsti jafnframt yfir eigin ábyrgð á aðgerðarleysinu sem stjórnarmeðlimur.  Salvör Gissurardóttir og Sólveig Jakobsdóttir buðu sig fram í stjórn. Fundurinn samþykkti inngöngu þeirra.

Önnur mál

Fram kom að  félagið er ekki nægjanlega auglýst. Rætt var um  félagafjölda og póstlista sem virðist ekki virka sem skyldi. Þótti ekki ástæða til að efla heimasíðuna þar sem þegar er til mikið af efni á neti.

Rætt var um hlutverk félagsins. Komu fram skiptar skoðanir um virkni félagsins sem hefur verið í lágmarki. UT ráðstefnurnar hafa tekið við hlutverki félagsins um ráðstefnuhald.

Salvör stakk upp á vísi að stofnun upplýsingatækniminjasafns. Sólveig stakk uppá spjallvef svipuðum þeim sem er á feminista-vef Salvarar. Nokkrir fundarmenn lýstu velþóknun yfir starfseminni þar sem yfirbygging og starfsemi er í lágmarki og sjóðir gildna.

Fundi slitið

Lilja Jóhannsdóttir, ritari