Aðalfundur 2002

 

Aðalfundur 3F í MH 1. mars 2002

Fundurinn var haldinn í tengslum við UT2002 ráðstefnuna sem haldin var í Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Fundur var settur af formanni kl. 17:00.

Skýrsla formanns

Starf félagsins var fyrst fremst í formi námskeiða og er það í fullu samræmi við tilgang félagsins.

Haldin voru 2 námskeið fyrir framhaldsskólakennara:

  • Forritun fyrir Client Server.
  • Námskeið í Javaforritun fyrir kennara.

Haldið var 1 námskeið fyrir grunnskólakennarar í samstarfi við Flöt og bar það nafnið tölvur og stærðfræði, voru þátttakendur 21.

Í skýrslu sinni lagði formaður jafnframt áherslu á að stjórnin beitti sér fyrir því að efla fagvitund upplýsingatæknikennara.

Að lokum sagði formaður frá vilja stjórnar Félags vélritunar- og ritvinnslukennara (FVR) að ganga til samstarfs við 3F. Nánar er greint frá því máli undir liðnum önnur mál.

Reikningar lagðir fram

Aðalfundur tekur undir þann vilja stjórnar að nýta verði eigið fé félagsins til góðra verka en ekki safna því. Tilgangur félagsins er ekki að safna sjóðum. Aðalfundur samþykkir samhljóða að finna uppsöfnuðum sjóð farveg til heilla fyrir félagið.

Kolbrún kom með tillög um að einhverjum hluta hans verði veitt til að efla vefsíðu félagsins. Fram kom í því sambandi að allnokkuð sé af góðum hjálparvefjum fyrir upplýsingartæknikennara og kannski að æra óstöðugan bæta einum vef í það safn.

Ársreikningar félagsins voru samþykktir samhljóða.

Lagabreytingar

Engar lagabreytingar voru lagðar fram.

Stjórnarkjör

Sitjandi stjórn gaf öll kost á sér utan Atla Harðarsonar. Í hans stað kom inn í stjórn félagsins Sólveig Friðriksdóttir frá Fél. vélritunar- og ritvinnslukennara. Atla eru hér með þökkuð vel unnin störf fyrir félagið.

Formaður, Lára Stefánsdóttir var endurkjörin samhljóða.

Aðrir stjórnarmeðlimir, Sólveig Friðriksdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson, Kolbrún Hjaltdóttir og Sigurður Halldór Jesson voru kjörnir samhljóða.

Endurskoðendur voru kjörnir Sturla Bragasona og Ómar Baldvinsson.

Önnur mál

A

Í tengslum við vilja FVR að ganga til samstarfs við 3F lýsir aðalfundur 3F eftirfarandi yfir:

"Aðalfundur 3F lýsir yfir áhuga og velvilja á að efla samstarf við FVR til eflingar á faglegu starfi".

Fram kom í máli Sólveigar Friðriksdóttur stjórnarmanns FVR að stjórnin sé einhuga um að ganga til samstarfs og inngöngu í 3F.

Á

Sturla vildi auka framboð á námskeiðum fyrir kennara. Í framhaldi af því kom fram að sótt var um styrk til Menntamálaráðuneytisins um að halda 2 námskeið en aðeins fékkst styrkur til eins, námskeiðs um gagnagrunnsfræði.

B

Kolbrún benti á þörfina að auka fagleg samskipti t.d. við fagfélög í Skandínavíu og Evrópu.

D

Fram kom tillaga um að þakka fráfarandi menntamálaráðherra fyrir samstarfið. Samþykkt var að senda honum E-póst þar sem honum yrði þakkað samstarfið.

Meira var ekki rætt á fundunum og fundi slitið kl. 17:45

Fundargerð ritaði Sigurður Halldór Jesson, ritari stjórnar.