|
|
|
Rachel Ager í heimsókn á Íslandi í boði 3f og FL. Dagana 23 til 26 október 2006 var stödd hér á landi Rachel Ager í boði 3f og Félags Leikskólakennara. Rachel hélt tvö námskeið fyrir leikskólakennara á meðan á dvöl hennar stóð og kynnti sér nokkra leikskóla hér á landi. Það voru Fjóla Þorvaldsdóttir sérkennsluráðgjafi í Kópavogi og Hanna Dóra Leifsdóttir sérkennslustjóri í Garðabæ sem höfðu frumkvæði að komu hennar hingað til lands. Hér verður stiklað á stóru um það helsta sem fram kom á námskeiðum hennar. Fyrri hluti námskeiðsins notaði Rachel til þess að segja frá þróunarverkefni sem hún verkstýrði og unnið var í hennar skólaumdæmi, Northamptonshire. Verkefnið fólst í því að innleiða tölvu- og upplýsingatækni í daglegt starf leikskólanna. Markmið Rachel Ager kom inn á
þær breytingar sem orðið hafa síðustu ár og hversu mikilvægt það er fyrir
leikskólann að þróast með. Þjóðfélög eru að þróast úr minningarsamfélagi yfir í
þekkingarsamfélag þar sem lausnarleitarnám væri einn mikilvægasti hlekkurinn í
skólagöngu barna. Hún sagði að vel skipulagður leikur væri lykillinn að námi í
leikskólum og mikilvægt er að kynna upplýsingatækni fyrir börnunum á þann hátt
að hún hefði tilgang. Síðan kom hún með margvísleg dæmi um það hvernig
leikskólakennarar skipulegðu leik barnanna með því að samflétta leik- og
upplýsingatækni saman með frábærum árangri. Að lokinni umfjöllun um þróunarverkefnið ræddi Rachel um mikilvægi hlutverkaleiksins í leikskólastarfinu og hvernig nota má hann sem leið til þess að kynna fyrir börnunum tölvu- og upplýsingatækni. Hér má sjá íslenska þýðingu á skyggnum hennar: Hlutverkaleikur Þá fjallaði hún um notkun tölva í leikskólum. Hún lagði m.a. mikla áherslu á mikilvægi þess að kennarar vandi til verka þegar kemur að vali á forritum. Hér má sjá íslenska þýðingu á skyggnum hennar: Notkun tölva Leikföng sem hægt er að forrita voru einnig umfjöllunarefni Rachel. Hún kynnti fyrir kennurum nokkuð af nýjum leikföngum, en nýlega fór Skólavörubúðin að selja slík leikföng. Hér má sjá íslenska þýðingu á skyggnum hennar: Forritanleg leikföng Að lokum fjallaði
Rachel Ager um stafræna ljósmyndun. Rachel leggur mikla áherslu á að farið sé að
reglum hvað varðar birtingu stafrænna mynda. Hún kom einnig inn á með hvaða
hætti hægt er að leyfa börnunum að kynnast þessari tækni. Hún sagði að við ættum
óhikað að leyfa börnunum að leika sér með myndavélarnar. Kenna verður þeim
umgengni við vélarnar, en hún vissi ekki til þess að börn færu verr með
myndavélar en fullorðnir. Hér er slóð á tæknibúnað sem mátti sjá notaðan í myndskýringum Rachel Ager, http://www.compuvisor.com/digbludigmov1.html Hér er slóð á tölvuforrit, Tizzy's First Tools sem Rachel mælti sérstaklega með til þess að nota í leikskólum http://www.softease.com/tizzy.htm Á meðan á heimsókninni stóð fór Rachel í heimsókn í leikskólana Furugrund og Hvarf í Kópavogi. Leikskólann Hamraborg, þar sem hún fékk að kynnast vísindum með börnum. Einnig var farið hinn “Gullna hring” og í Bláa lónið. Sjá má myndir frá heimsókn hennar hér. http://app.tabblo.com/studio/stories/view/125816/
|
|
|