Rachel Ager


Heim
Upp
Stjórnarfundir
Fréttir
UT námskrá
Rachel Ager

 

Rachel Ager, enskur leikskólaráðgjafi, mun halda tvö námskeið um hvernig hægt er að tengja tækni  daglegs lífs inn í starf og námskrár leikskóla. Fyrra námskeiðið verður í Kópavogi 24.október og það seinna í Reykjavík 25. október. Ager hefur vakið athygli fyrir þróunarstarf sem hún hefur leitt.

Dagana 23-26. október n.k. dvelur hér á landi í boði 3f Rachel Ager leikskólaráðgjafi.  Rachel  stýrði þróunarverkefni í leikskólum í Northamptonshire í Englandi  á árunum 2004-2006. Markmið þróunarverkefnisins var að taka inn í leikskólastarfið alla þá þætti í samfélagi og daglegu lífi þar sem tækni kemur við sögu og setja inn í skólanámskrá leikskólanna.

Rachel Ager kemur til með að halda tvö námskeið um þetta efni. Fyrra námseiðið verður í Kópavogi þriðjudaginn 24.október kl. 8.30 -11.30 og það seinna á vegum Menntasviðs Reykjavíkur miðvikudaginn 25.október kl.8.45-11.45.

Námskeiðin eru nánar auglýst í bæklingum sem gefin hafa verið út og dreift í leikskólana.

“Tækni í daglegu lífi

Á þessu námskeiði mun Rachel Ager leikskólakennari frá Northamptonshire í Englandi ræða um þær breytingar sem orðið hafa síðustu ár á daglegu lífi fólks. Hún ræðir m.a. um það hversu mikilvægt það er fyrir leikskólann að þróast með.  Þjóðfélög eru að þróast úr minningarsamfélagi yfir í þekkingarsamfélag þar sem lausnarleitarnám er einn mikilvægasti hlekkurinn í skólagöngu barna. Rachel segir frá þróunarverkefni sem hún stýrði. Markmið þróunarverkefnisins var að taka inn í leikskólastarfið alla þá þætti í samfélagi og daglegu lífi þar sem tækni kemur við sögu og setja inn í skólanámskrá leikskólanna. Með því móti væri hægt að leyfa börnum á leikskólaaldri að upplifa og taka þátt í því tæknisamfélagi sem við lifum í. Í Bretlandi eins og hér á landi hefur fólk verið mjög upptekið af tölvunni sjálfri en gleymt að það er tækni af margvíslegum toga allt um kring í daglegu lífi fólks.

 Markmið:

Megin markmið námskeiðsins er að vekja athygli þátttakenda á þeirri tækni sem er allt um kring í nútíma samfélagi. Hvernig getum við með auðveldum hætti veitt börnum á leikskólaaldri innsýn í þá tækni sem notuð er t.d. í verslunum, ljósmyndun, af lögreglunni o.fl.

 Námskeiðið fer fram á ensku, en Rachel styður mál sitt með myndupptökum og því mjög auðvelt að skilja hvað fram fer. Auk þess verða allar fyrirspurnir og umræður túlkaðar eftir þörfum.

Þetta er skemmtilegt námskeið sem á erindi til allra sem starfa í leikskólum. Hægt er að lesa sér meira til um efnið á þessari slóð http://nemendur.khi.is/fjolthor/fyrirlestur.htm

                                        (Úr bæklingi sem dreift hefur verið í leikskólana)


Heim | Stjórn | Starfið | Vefdagbók

 3F - Félag um upplýsingatækni og menntun © 2005
Síðast uppfært: 07. maí 2007 Þorbjörg Garðarsdóttir