Ágæti lesandi.

3F - Félag um upplýsingatækni og menntun er félag þeirra sem starfa við upplýsingatækni í menntastofnunum landsins. Félagið hefur nokkrum sinnum skipt um nafn en ævinlega hefur það haldið skammstöfuninni 3F sem er frá fyrsta nafni félagsins er það hét 3F - Félag forritara fræðslukerfisins. Í þá daga var orðið upplýsingatækni ekki til.

Eins og núverandi nafn félagsins ber með sér þá er það vettvangur þeirra sem með einum eða öðrum hætti koma að upplýsingatækninni í menntun í dag. Í félaginu eru kerfisstjórar, þeir sem forrita kennsluforrit, kennarar af öllum skólastigum frá leikskóla til háskóla, skólastjórnendur og margir fleiri.

Félagið er ekki alltaf með mikla starfsemi en stendur þó fyrir námskeiðum sem tengjast viðfangsefnum upplýsingatækninnar, árlegum aðalfundum, metur umsóknir um styrki sem tengjast UT og síðast en ekki síst er það samfélag þeirra fagmanna sem starfa á sviði upplýsingatækni í menntun.

Við sem erum í stjórn félagsins lítum svo á að við séum tengiliðir, það er við sköpum farveg fyrir umræðu á póstlistanum tol-3f@ismennt.is, höldum árlegan aðalfund auk þess sem áður greinir. Hver félagsmaður hefur frelsi til að tjá skoðanir, spyrja ráða, setja af stað umræðu um tiltekið efni og margt fleira.

Fyrir áratug var félagið talsvert virkara en það er í dag, þrátt fyrir það að UT sé miklum mun stærri þáttur í skólastarfi nú en þá. En þeir sem starfa við upplýsingatæknina eru jú þeir sem oftast eru störfum hlaðnir og hafa minnstan tíma. Þeir eru oft þeytispjöld í frímínútum, matartímum, fyrir og eftir skóla til að hjálpa öðrum. Stundum á launum, stundum ekki.

Sumir hafa haft þá skoðun að félagið ætti ef til vill að vera hagsmunafélag en það er erfitt þar sem félagsmennirnir eru í fjölmörgum stéttarfélögum og eiga einungis það sameiginlegt að starfa innan menntakerfisins að upplýsingatækni. Því er 3F - Félag um upplýsingatækni og menntun fyrst og fremst fagfélag.

Ég vil nota tækifærið hér og hvetja alla sem starfa við upplýsingatækni og menntun að taka þátt í starfsemi félagsins með því að skrá sig á póstlistann tol-3f@ismennt.is

Kær kveðja
Lára Stefánsdóttir, lara.is
Formaður 3F - félags um upplýsingatækni og menntun