Ágæti lesandi.

Allt frá stofnun fagfélagsins, 3F – Félag um upplýsingatækni og menntun, á níunda áratugnum hefur starfsemin tengst menntun og þá í gegnum tölvur. Í upphafi voru það forritarar fræðslukerfisins sem komu að félagsskapnum en síðan færðist áherslan yfir á upplýsingatæknina og notkun hennar í skólastarfi á öllum skólastigum.

Frá því að upplýsinga- og tæknimennt varð að sérstakri námsgrein, með tilkomu nýrrar Aðalnámskrár árið 1999, hefur hún tekið við sem faggrein þessa fagfélags. Frá því ég kom inn í stjórn 3F árið 2002 hefur megináherslan verið lögð á námskeiðahald fyrir félagsmenn. Þau hafa jafnan verið vel sótt og gagnleg og skilað sér inn í skólastofurnar til gagns fyrir ekki bara kennara heldur einnig nemendur okkar. Upplýsingatæknin er komin til að vera og ekkert fær því breytt nú á 21. öldinni.

Undanfarin ár hefur fjarnám og fjarkennsla verið í örum vexti og nýtur sívaxandi athygli og áhuga þeirra sem vilja bæta við sig námi. Netsamskipti í fjarkennslu hér á landi er í raun vannýttur möguleiki og vegna þessa var ákveðið á síðasta starfsári félagsins að leggja áherslu á ýmislegt er lýtur að fjarnámi og -kennslu og kynna möguleika þess fyrir félagsmönnum okkar, s.s. kosti og galla þess og þá bæði það sem snýr að fjarnemanum og -kennaranum.

3F er vettvangur þeirra sem starfa að upplýsingatækni í menntun. Í félaginu eru kennarar á öllum skólastigum, frá leikskóla upp í háskóla, og kerfisstjórar einnig. Það er von mín að starfið í 3F verði öflugt og virkt til gagns fyrir sem flesta en segja má að upplýsingatæknin snúi nú að öllum greinum innan skólakerfisins.

Upplýsingatæknikveðjur

Reykjavík október 2005

Sólveig Friðriksdóttir
formaður 3F – Félags um upplýsingatækni og menntun