- kafli: Nafn, heimili og tilgangur félagsins
- Félagið heitir 3f Félag um upplýsingatækni
og menntun
- Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík
- Tilgangur félagsins er:
- Að stuðla að aukinni menntun í upplýsingatækni
- Að vera vettvangur fyrir skoðanaskipti um upplýsingatækni í námi og kennslu og þróun á því sviði.
- Að standa vörð um hagsmuni þeirra sem vinna að hagnýtingu upplýsingatækni í námi og kennslu.
- Að vera tengiliður á milli menntayfirvalda og félagsmanna.
- kafli: Félagsmenn og skyldur þeirra
- Félagar geta orðið:
- Starfsmenn menntastofnana sem vinna við upplýsingatækni í námi og kennslu.
- Áhugamenn um upplýsingatækni, sem stjórn félagsins samþykkir.
- Ákvarðanir um félagsjöld skulu teknar á aðalfundi.
- kafli: Fundir félagsins
- Fundi, námskeið og hvers konar samkomur á vegum félagsins skal stjórn boða með minnst 14 daga fyrirvara.
- Aðalfundur félagsins skal haldinn ár hvert og má halda fundinn með netmiðlum.
- Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Formaður félagsins eða staðgengill hans setur fund og tilnefnir fundarstjóra.
- Skýrsla formanns.
- Lagðir fram reikningar síðasta fjárhagsárs.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar.
- Kosning endurskoðanda.
- Önnur mál.
- kafli: Stjórn og stjórnarkjör
- Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum, formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og einum meðstjórnanda.
- Við stjórnarkjör skal formaður kosinn sérstaklega. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir án tilnefningar í embætti.
- Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund.
- Sé kosið milli fleiri en tveggja þá nær sá kjöri sem flest atkvæði hlýtur.
- Falli atkvæði jöfn skal hlutkesti skera úr.
- Endurskoðendur skulu vera tveir og kosnir á aðalfundi. Um kosningu endurskoðenda gilda sömu reglur og um kjör stjórnar (sbr. 4d).
- kafli: Lög og lagabreytingar
- Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Til þess að tillaga um lagabreytingu öðlist gildi þarf hún að vera kynnt í fundarboði og fást samþykkt af þremur fjórðu hlutum fundarmanna.
- Lög þessi öðlast gildi nú þegar.
Samþykkt á aðalfundi 26. apríl 2000.
|