|
|
|
|
Akureyri er höfuðstaður Norðurlands. Þegar ég kom þangað, þá var vetur og allt á kafi í snjó. Ég byrjaði á því að heimsækja börnin á leikskólanum Hlíðarbóli og fórum við saman í gönguferð niður í bæ. Þar rákumst við á þennan stærðar snjókarl, stærsta snjókarl á landinu. Kannt þú að búa til snjókarl ? Börnin vildu fá mig með sér á skíði í Hlíðarfjalli. Ég ákvað að slá til. Mér fannst það mjög gaman. Hefur þú farið á skíði? En hvaða stóra hús var þetta sem ég sá gnæfa þarna? Það voru svo margar tröppur að því. Akureyrarkirkja. Akureyrarkirkja er eitt af sterkustu einkennum bæjarins. Ég ákvað að labba upp allar tröppurnar að kirkjunni og telja þær í leiðinni. Ég taldi og taldi og þegar ég var komin upp, þá voru tröppurnar orðnar 104. Kannski taldi ég vitlaust. Vilt þú prófa að telja næst þegar þú heimsækir Akureyri. Kvæðið um fuglana. "Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar guðs í paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf." Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Þjóðsöngurinn. Matthias Johcumsson skáld bjó á Akureyri. Hann samdi þjóðsönginn okkar. |