|
|
|
| Það var snjór og frost þegar ég kom til Egilsstaða. Ég ákvað þó að bregða mér í sund þrátt fyrir kuldann. Þar hitti ég hress börn sem buðu mér í gönguferð um bæinn sinn. Þau byrjuðu á því að fara með mig á Byggðarsafnið. Þar er mikið af hlutum frá því í gamla daga. Mér fannst mest gaman að skoða Haugbúann úr Skriðdal, en þar er 1000 ára gamall maður sem fannst í jörðinni. Hann var jarðarður með hestinum sínum, sverði, brýni og grautarpotti úr steini. Þar sá ég líka baðstofu, svona stofu eins og langafi og langamma áttu einu sinni heima í. Mér finnst gaman að fræðast um lífið í gamla daga. Lagarfljótsormur. Við Egilstaði er stórt fljót, Lagarfljót. Mér sýndist ég sjá eitthvað hreyfast í því. Börnin sögðu mér að þar byggi Lagarfljótsormurinn, risastór ormur, sem sést stundum koma uppúr fljótinu. Það er ormaleikur í krakkabankanum. Viltu prófa hann? Farðu þá í íþróttahúsið. Hann er þar. |