Grímsey
Hver er Palli ? Ferðalög erlendis Ferðalög á Íslandi Leiðbeiningar Gestabók

 

Heim
Til baka

 

Ég lenti í Grímsey á Piper flugvél og fékk ég að sitja frammí hjá flugmanninum alla leiðina frá Reykjavík.

Grímsey er nyrsta byggð við Ísland. Þar er lítið fiskisamfélag og þar er hægt að sjá mikið af fuglum í björgum umhverfis eyjuna. Þar verpa um 60 tegundir fugla, meðal annars Álka, Lundi, Langvía og Teista. Mér finnst gaman að skoða fugla. 

 

Heimskautsbaugur.

Ég fékk viðurkenningu fyrir að hafa ferðast norður yfir heimskautsbaug. Þú getur séð hana í ferðakistunni minni.

Bjarndýr.

Bjarndýr hafa borist til Grímseyjar með hafís og var m.a eitt dýr veitt þar árið 1969. Það er varðveitt á Náttúrugripasafninu á Húsavík. 

Getur þú öskrað eins og ísbjörn? Eða sungið lagið um bangsa:

"Bangsi lúrir,bangsi lúrir bæli sínu í. Hann er stundum stúrinn, stirður eftir lúrinn. Að hann sofi, að hann sofi, enginn treystir því."

Hefur þú skoðað bækurnar um litla ísbjörninn sem lendir í ævintýrum eftir Hans de Beer? Þar eru fallegar myndir af ísbjörnum.