Það var sól og gott veður þegar ég kom til Hafnar í
Hornarfirði. Þar sá ég falleg fjöll og jökul í fjarska. Mér er sagt að
hann heiti Vatnajökull og hann er stærsti jökullinn á Íslandi.
Vöfflur
og rjómi.
Mér er
boðið í kaffi til Vignis og fjölskyldu hans og þar fæ ég vöfflur og rjóma.
Mér fannst þær svo góðar að ég fékk uppskriftina.
Ég mæli með henni.
Silfur
hafsins.
Við höfnina var margt um manninn. Þar voru bátar að koma í
höfn með fisk. Mér fannst glitra vel á hann, svona eins og hann væri úr
silfri. Börnin sögðu mér að þetta væri síld, sem stundum er kölluð
silfur hafsins.