Norðurlöndin
Hver er Palli ? Ferðalög erlendis Ferðalög á Íslandi Leiðbeiningar Gestabók

 

Heim
Til baka

 

Danmörk.

Mikið fannst mér fallegt í Danmörk. Þar voru þó ekki eins há fjöll og á Ísafirði. Í Kaupmannahöfn, sem er höfuðborg Danmerkur,er  Tívolí . Þar er sko hægt að skemmta sér. Ég fór í rússibana og varð eiginlega hálfhræddur. Ég keyrði í bíl með Söru og Nínu til Billund og sá fullt af kúm og alla vega trjám á leiðinni. Í Billund heimsótti ég Legoland. 

Finnland.

Ég fór til fjölda staða í Finnlandi á ferðum mínum með leikskólakennaranemum. Þær voru svo skemmtilegar. Við fórum í skemmtilgarð, heimsóttum Múmínálfana, en þeir eiga heima í Múmíndalnum í Tampere. Við litum við í dúkkusafni sem var í stórri höll og hvar heldur þú að Barbiedúkkan sé framleidd ?

Noregur.

Til Noregs fór ég með Stefaníu og mömmu hennar. Við flugum til Osló og skoðuðum okkur um þar. Þaðan héldum við til Hamar og heimsóttum þar leikskóla sem gerðist vinaleikskóli Kjarrsins. Við skoðuðum tröllaverksmiðju í Tynset. Norsku tröllin eru ekki eins og íslensku tröllin, eða það fannst mér ekki.  

Önnur Norðurlönd.

Því miður hef ég ekki heimsótti fleiri lönd í Norðri. Ef þú ert að fara að ferðast um Norðurlöndin taktu mig þá með. Mér finnst svo gaman að ferðast.Nú ef ég kemst ekki með þér, skrifaðu mér þá um ferðir þínar í gestabókina.