Haustið 1997 var ákveðið í leikskólanum Kjarrinu,
Garðabæ að hafa sem þemaverkefni vetrarins "Landið okkar Ísland".
Sú hugmynd kom upp að senda tuskubrúðu til áfangastaða Flugleiða
innanlands. Ég, Palli varð fyrir valinu enda íslenskur í húð og hár,
handgerður á námskeiði hjá Íslenskum heimilisiðnaði af móður
eins leikskólakennarans. Ég var klæddur í smábarnaföt af einu
leikskólabarninu og fékk bakpoka sem í var dagbók með mynd af
börnum leikskólans ásamt upplýsingum um mig og verkefnið mitt.
Síðan var ég kvaddur með kossum og föstum
faðmlögum.
Sum börnin vildu fá að fara með, en Stefanía var
svo heppin að fá að fylgja mér út á flugvöll.
Ég var einn mánuð á ferðalagi um Ísland og kom
víða við.
Eftir að hafa hvílt lúin bein var ferð minni heitið
út í heim.
Það skemmtilegasta sem ég geri er að hitta börn. Vilt þú vera í
samskiptum við börn um allan heim
?