Reykjavík er höfuðborg Íslands. Fyrsti landnámsmaðurinn,
Ingólfur Arnarsson byggði bæ sinn þar sem Reykjavík er nú. Hann nefndi
bæinn sinn Reykja vík af því að það kom reykur upp úr jörðinni. Hefur
þú séð reyk í Reykjavík? Ég sá bara reyk koma úr öllum bílunum sem
eru þar.
Það er margt sem hægt er að læra um Landnám Íslands
og um líf landnámsfólksins hér.
Tjörnin.
Í miðri Reykjavík er Tjörnin og þangað fór ég með
börnunum í Kjarrinu að gefa öndunum brauð. Þar sá ég líka svani. Þegar
við komum aftur í leikskólann þá las fóstran fyrir okkur bókina um
Dimmalimm. Þegar þeim lestri lauk þá hlustuðum við á kaflann um svanina
í Karnival dýranna eftir Saint Saëns. Og við fengum að búa til svani úr
leir. Það var sko gaman. Þekkir þú einhverja vísu um svani? Hér
kemur ein:
álftirnar kvaka.