Vestmannaeyjar
Hver er Palli ? Ferðalög erlendis Ferðalög á Íslandi Leiðbeiningar Gestabók

 

Heim
Til baka

Það var vel tekið á móti mér í Vestmannaeyjum. Þegar ég hafði sofið úr mér ferðaþreytuna fékk ég góðan morgunverð og Eyjalýsi með. Maður verður svo hraustur af því.

Eldgos í eyjum.

 Ég gekk að eldfjallinu Eldfelli sem myndaðist í eldgosinu sem var á eyjunni árið 1973. Þá lagðist aska yfir nærri allan bæinn. Ég fékk stein úr fjallinu. Það er engin eldur í því lengur. 

Ég heimsótti börnin á leikskólanum Kirkjugerði og við fengum okkur göngutúr niður að höfn. Þar sáum við allan fiskinn sem var verið að landa úr bátum. Þar sáum við Þorsk, Ufsa, Steinbít, Lúðu og Rauðsprettu.

Á klettasyllum við eyjuna sá ég mikið af Lunda. Þeir hafa svo fallegt nef, svona röndótt. Ég sá líka fólk vera að sveifla sér eins og Tarsan þarna í klettunum. Hvað ætli það hafi verið að gera?

    Keikó.

Keikó er kominn heim ! Hann var búinn að vera í útlöndum svo lengi. Það var gott að hann er kominn heim.Ég sá hann synda í lauginni sinni og sá að hann var glaður að vera komin aftur til okkar.