HEIMASÍÐA HÖFUNDAR

ÍSLENSKA 
TÓNLISTARSÍÐAN

 


Þessi vefsíða hefur að geyma vísi að verkefnavef fyrir kennara þar sem tónlistin er í aðalhlutverki. Verkefnin má þó flest tengja öðrum námsgreinum og þá sérstaklega öðrum listgreinum.
Vefurinn er hugsaður sem eins konar hugmyndabanki þar sem bæði er að finna hugmyndir að verkefnum fyrir nemendur og heimildir og kennsluefni fyrir kennara og nemendur.  Gert er ráð fyrir að tölvur og upplýsingatækni séu notuð að einhverju eða öllu leyti við úrvinnslu verkefnanna.
Síðast uppfært 23. janúar 2000. 
Anna Ólafsdóttir
 


Árstíðirnar-nemendasíða
Vefleiðangur ætlaður nemendum á miðstigi þar sem lögð er áhersla á skapandi starf. Verkefnið er hægt að tengja mörgum námsgreinum s.s. móðurmáli, tónmennt, myndmennt og náttúrufræði. 

Árstíðirnar-kennarasíða
Kennsluleiðbeiningar fyrir kennara þar sem fram  kemur ýmislegt um markmið og úrvinnslu vefleiðangursins.

Söngleikir-nemendasíða
Vefleiðangur í tónmennt ætlaður nemendum á unglingastigi grunnskóla.  Einnig mætti hugsa sér að leyfa framhaldsskólanemendum á tónlistarbraut að vinna með hann í tengslum við tónlistarsögu eða umfjöllun um formgerðir tónlistar.

Söngleikir-kennarasíða
Kennsluleiðbeiningar fyrir kennara þar sem fram  kemur ýmislegt um markmið og úrvinnslu vefleiðangursins.

Til baka


 
 


 

 

Söngleikurinn "Litla hryllingsbúðin"
Kennsluefni um söngleikinn "Litla hryllingsbúðin" þar sem fjallað er um höfunda söngleiksins, söguþráð, tónlistina og textana.

Barokktímabilið í tónlist

Þessi vefur er hluti af stærri námsvef um barokktímabilið í listum. Þessi hluti er kennsluefni um barokktímann í tónlist.  Sagt er frá helstu tónskáldum barokktímans, lífi þeirra og verkum. Hægt er að hlusta á tóndæmi úr þekktum verkum auk þess sem vísað er á margar  vefsíður þar sem  hægt er að fræðast nánar  um formgerðir tónlistarinnar, skoða myndir af tónskáldunum o.fl. 

Til baka
 
 
 
 
 
 
 

Barokktímabilið í listum
Viðamikill námsvefur þar sem fjallað er um  barokktímabilið í listum.  Hér er að finna margvíslegt kennsluefni um barokktímann, þjóðfélgaslýsingu, umfjöllun um byggingalist, húsbúnað og textíl, myndlist og tónlist, tilvísanir í heimildir á Netinu ásamt hugmyndum að listgreinatengdum verkefnum um barokktímabilið sem kennarar geta látið  nemendur vinna.
 
 

Til baka

©1999 Anna Ólafsdóttir
Síðast  uppfært 23. janúar 2000.