HSP 103

Námsáætlun
Glærur
Verkefni
Tenglar
Borgarholtsskóli

 

 

 

Námsáætlun

Kennari: Anton Már Gylfason (anton@bhs.is)

Kennslubók: Heimspeki e. Martin Levander, Mál og menning 1997.

Markmið: Að nemendur geti með skýrum og greinargóðum hætti gert grein fyrir hugsunum sínum og hugmyndum. Að nemendur þekki helstu viðfangsefni heimspekinnar og þær aðferðir sem nafntoguðustu heimspekingar sögunnar hafa beitt í glímu sinni við þau.

Námstilhögun: Efni áfangans er skipt í þrjár lotur, sem hverri lýkur með prófi eða verkefni. Í fyrstu lotunni veltum við fyrir okkur spurningunni "hvað er heimspeki?" Farið verður yfir helstu undirflokka heimspekinnar og sérstök áhersla lögð á frumspeki og þekkingarfræði. Einnig munum við huga að merkingarfræði og röksemdafærslum. Önnur lota fjallar um siðfræði og stjórnspeki. Við veltum m.a. fyrir okkur spurningum um eðli mannlegs samlífs, algildi og afstæði siðferðis, kosti og galla ólíkra siðfræðikenninga, auk þess sem hugað verður að því hvort og þá hvernig heimspekilegar siðfræðikenningar gagnast okkur í daglegu lífi. Í þriðju lotunni hugum við að hinum svokallaða tilvistarvanda, þeim vanda sem maðurinn stendur frammi fyrir þegar hann finnur fyrir vanmætti sínum gagnvart heiminum.

Námsmat: Eftir tvær fyrstu loturnar verða próf úr efni kennslubókarinnar. Prófunum er fyrst og fremst ætlað að styðja ykkur við lesturinn. Í tengslum við efni þriðju lotunnar skrifum við stutta ritgerð þar sem að einhverju leyti verður stuðst við heimildir. Úr námsefni hverrar lotu eru að auki unnin nokkur hóp eða einstaklingsverkefni. Áfanganum líkur með prófi á próftíma.

 

Tímaáætlun og leslisti