|
HEI
1036
|
![]() |
|
Námsáætlun
|
|
Námsáætlun
Kennslubók: Heimspeki e. Martin Levander, Mál og menning 1997. Markmið: Að nemendur geti með skýrum og greinargóðum hætti gert grein fyrir hugsunum sínum og hugmyndum. Að nemendur þekki nokkur helstu vandamál heimspekisögunnar og kunni skil á tilraunum höfuðsnillinga heimspekinnar til að leysa þau. Námstilhögun: Efni áfangans er skipt í þrjár lotur, sem hverri lýkur með verkefni. Í fyrstu lotunni veltum við fyrir okkur spurningunni "hvað er heimspeki?" Farið verður yfir helstu undirflokka heimspekinnar og sérstök áhersla lögð á frumspeki og þekkingarfræði. Einnig munum við huga að merkingarfræði og rökfærslum. Önnur lota fjallar um siðfræði og stjórnspeki. Við veltum m.a. fyrir okkur spurningum um eðli mannlegs samlífs, algildi eða afstæði siðferðis, kosti og galla ólíkra siðfræðikenninga, auk þess sem hugað verður að því hvernig heimspekilegar siðfræðikenningar geta hugsanlega gagnast okkur í daglegu lífi. Í þriðju lotunni hugum við að hinum svokallaða tilvistarvanda, þeim vanda sem maðurinn stendur frammi fyrir þegar hann finnur fyrir vanmætti sínum gagnvart heiminum. Í lokin hugum við að hlutverki heimspekinnar í samtímanum. Námsmat: Hverri lotu lýkur með verkefni þar sem kafað er dýpra í ákveðna efnisþætti. Verkefnin verða send nemendum í tölvupósti viku fyrir skiladag og vegur hvert þessara verkefna 15% af lokaeinkunn. Ýmiss smáverkefni sem nemendur leysa samhliða lestrinum vega samtals 15%. Áfanganum líkur með prófi sem vegur 40% og haldið verður á próftíma (30 júní eða 1. júlí).
|
| Dags. | Lesa bls. | Efni | Kafli | Verkefni | Vægi | |
| 1. vika | 27. og 28. maí | 11-32 | Hvað er heimspeki?: Upphaf heimspekinnar - helstu undirgreinar - helstu spekingar – Rök- og merkingarfræði frumspeki - þekkingarfræði | Merkingarfræði og rökfærsla | ||
| 29.–31. maí | 33-40 | Hvað er veruleikinn? | ||||
| 1. og 2. júní | 41-49 | |||||
| 2. vika | 3. og 4. júní | 51-62 | Hvað er þekking? | |||
| 5.-7. júní | 63-79 | |||||
| 8. og 9. júní | Verkefni I | 15% | ||||
| 3. vika | 10. og 11. júní | 81-95 | Siðfræði og stjórnspeki: Hvers vegna siðfræði? - nytjastefnan - reglusiðfræði - siðfræði og stjórnspeki - Marx - Rawls - Nozick | Hvernig á maður að lifa og breyta? | ||
| 12.jún | 95-103 | |||||
| 13.jún | 104-112 | |||||
| 14.jún | 193-204 | Heimspeki og stjórnmál | ||||
| 15. og 16. júní | 205-211 | Verkefni II | 15% | |||
| 4. vika | 18.jún | 113-119 | Tilvist og tilgangur: Einstaklingur og heimur - Nietzsche og ofurmennið - Kierkegaard og lífsviðhorfin þrjú - Sartre og tilgangsleysi lífsins - er vandi að vera til? | Tilgangur lífsins | ||
| 19.jún | 120-124 | |||||
| 20.jún | 125-137 | |||||
| 23.-24. júní | 221-224 | Heimspekin og nútíminn: Er enn eitthvað vit í heimspeki eða hefur heimspekin lokið hlutverki sínu? | Hlutverk heimspekinnar | |||
| 25.-27. júní | 225-229 | Verkefni III | 15% | |||
| Ýmiss smáverkefni | 15% | |||||
| Lokapróf | 40% | |||||