Sveipuð trafaaskja/bakki
Smádótahilla
Rugguhestur
Renndar skálar, box og bakkar
Eldhúslína úr furu
Leikfangatrúður
Eldhúsáhöld
Skartgripasett
Hlutur með fatningu

Kertastjaki úr málmi og steini

Rissmát
Útskorin gestabók
Viðarprufukassi
Kennsluverkefni
Fleiri verkefni
Smíðaslóðir

 

© 1999 - 2002
Vefstjóri:
Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002

Eldhúslína

Efni: Fura

Lýsing:

Efni fundið og sagað niður í heppilegar lengdir, heflað í afréttara og þykktarhefli. Í sumum tilfellum þurfti að líma saman því réttar breiddir voru ekki til.

Munstur teiknað inn á gafla og sagaðir í tifsöginni.

Hillurnar efstu hafðar aðeins fram yfir dýpt og breitt og þær fræstar að framan og á hliðum.

Punthandklæðahengi er dílað í hilluna, stöng sett á, hankar settir á neðri spítu, hnappar renndir og settir á enda stangarinnar.

Á diskarekka er fræst fyrir diskana á hillunum tveimur. Hillan díluð saman, stangir sagaðar í réttar lengdir og hnappar renndir og settir á endana. Hankar festir á neðstu þverspítuna fyrir könnur.

Eldhúsþurrkuskápur: Útvúinn er skápur, hurð með lömum framan á inn í skápnum eru geymdar rúllurnar þrjár þegar keyptur er fjögurra rúllu heimilispakki. Dílað saman og límt. Stöng útbúinn fyrir eldhúsrúlluna sem er í notkun og hnappar renndir og settir á endana.

Pússað vel yfir allt saman með 120-240-3200 pappír.

Borið á antik bæs og síðar rustik olía. Eftir síðustu umferð af rustik olíu er pússað yfir með 1200 pappír.

Yfirborðsmeðferð: Antik bæs og rustik olía