|
|||||||||||
|
©
1999 - 2002 Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002 |
Hlutur með fatningu Hálsmen.
Efni: Silfur og austfirskur steinn. Lýsing: Byrjað er á gjörðinni utan um steininn. Hún er söguð niður í passlega lengd og breidd fyrir steininn. Gjörðin er svo pússuð vel og síðan mótuð utan um steinin og kveiktir saman endarnir. Steininn er þríhyrningur og því ekki auðvellt að eiga við hann, mæli frekar með kringlóttum eða sporöskjulaga steinum. Þegar búið er að kveikja saman endana er steinninn aftur mátaður í og gjörin síðan kveikt á undirlag úr silfri, þegar steinnin er farin að passa alveg í, líklegast þarf að pússa aðeins til að fá hann til að passa þannig að hann sé ekki alveg þröngur í en samt ekki of rúmur. Þegar búið er að kveikja á undirlagið er sagað í kringum það því ég vildi ekki hafa neitt meðfram nema bara bút að ofan til að gera krækju fyrir keðjuna. Það er svo pússað vel svo engin samskeyti sjáist. Steinninn er svo settur í og púnsað í kringum hann þar til hann situr fastur í fatningunni. Í mínu tilfelli þurfti svo að pússa hornin vel til af því steinninn var þríhyrningslaga. Að síðustu er fatningin póleruð vel þegar búið er að líma límband ofan á steininn til að verja hann. Yfirborðsmeðferð: Pólering. |
||||||||||
|
|
|||||||||||