Sveipuð trafaaskja/bakki
Smádótahilla
Rugguhestur
Renndar skálar, box og bakkar
Eldhúslína úr furu
Leikfangatrúður
Eldhúsáhöld
Skartgripasett
Hlutur með fatningu

Kertastjaki úr málmi og steini

Rissmát
Útskorin gestabók
Viðarprufukassi
Kennsluverkefni
Fleiri verkefni
Smíðaslóðir

 

© 1999 - 2002
Vefstjóri:
Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002

Útskorin gestabók

Efni: Hlynur og hnota.

Lýsing:

Efni er sagað í bókakápuna, það heflað til í passlega þykkt.

Mynd er fundin og sett yfir á bókarkápuna með kalkipappír.

Myndin er skorin út og pússað yfir hana.

Lamirnar eru gerðar úr hnotu, formaðar til eins og hentar myndinni á bókinni. Einnig er gerð hluta af löm hægra megin fyrir pennan því hann á það til að vera alltaf að tínast.

Lamirnar límdar á kápuna og á bakstykkið er svo settur listi og hinn hlutinn af lömunum settar á það.

Borað er fyrir skrautdílum tveimur í hvert lamastykki og þeir límdir á sinn stað.

Borað er fyrir blöðum á neðra stykkið og gerð rauf á milli svo bókin fljóti ekki á leðurreiminni sem notuð er til að festa blöðin í.

Bókin er sett saman með dílum í gegnum lamastykkin og hún síðan pússuð vel og borið á hana rustik olía nokkrum sinnum.

Eftir síðustu umferð er pússað yfir með 1000 pappír.

Yfirborðsmeðferð: Rustik olía.