|
|||||||||||
|
©
1999 - 2002 Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002 |
Storkurinn með kertastjaka
Efni: Nýsilfur, messing og kopar. Lýsing: Mynd af storki límd á málminn, fuglinn sjálfur á nýsilfur, goggurinn á kopar og pokinn hans á messing. Allir kantar eru pússaðir vel með þjöl og sandpappír. Ofan á er pússað vel með 600 sandpappír. Hlutarnir eru svo kveiktir saman með silfurslaglóði. Fuglinn er svo pússaður vel og það sem fór útfyrir af silfurslaglóðinu er fjarlægt með þjöl og síðan sandpappír. Aftan á fuglin er kveiktur teinn til að geta fest hann á steininn. Útbúinn er stæði fyrir sprittkeri úr koparröri sem kveikt er á koparplötu. Á kertastæðið er einnig kveiktur á teinn til að festa niður í steininn. Það er svo pússað vel og pólerað og borið á það brennisteinslifur til að dekkja því það á að vera í bakgrunni og falla við steinin. Á steininn eru svo boruð göt, eitt ofan á og eitt á hlið. Þegar búið er að pólera hlutina vel og þeir tilbúnir eru þeir límdir með epoxy leirlími í götin. Undir steininn er svo settur korkur sjálflímandi til að verja borðið sem steinnin er lagður á. Yfirborðsmeðferð: Pólering. |
||||||||||
|
|
|||||||||||