|
|||||||||||
|
©
1999 - 2002 Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002 |
Rennd skál á platta.
Efni: Álmur. Lýsing: Fundið til efni og heflað til. Sagaður út hringur. Límt á krossviðarskífu. Platti skrúfaður á krossviðarskífuna Byrjað er á því að móta endann til að vinna á slættinum sem alltaf kemur hversu vel sem skífa og platti eru miðjuð. Skál mótuð að utan og síðan að innan, notað skálajárn og skrapur. Þegar búið er að móta er pússað vel með 60-80-120-240-320-400-800-1000 pappír, viðurinn er mjög harður því erfitt að vinna á hvers kyns sprungum. Borin er brúnn bæs á og leyft að þorna vel. Borið á melanin lakk og mjúkt vax. Skál skorin af platta með flötu járni, pússað undir á slípibandi/juðara ob borið á bæs, lakk og vax. Yfirborðsmeðferð: Bæs, melanin lakk og vax. Rennt box
Efni: Reyniviður ofl. Lýsing: Efni komið fyrir milli enda í rennibekknum. Rúnað vel hringinn til að búa til festingu fyrir patrónu. Efnið fest í patrónuna. Box formað að utan og mótað fyrir loki Pússað vel með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír niður allar sprungur. Lok skorið af. Rennnt inn í boxinu og passað að lokið smelli á en verði ekki laust. Pússað inn í boxinu ekki of mikið svo lok verði ekki laust. Lok smellt á og pússað saman með boxi. Borið á lakk og vax eða rustikolía. Box skorið af, pússað undir því og borið á það lakk og vax eða rustikolía. Yfirborðsmeðferð: Melanin lakk og vax eða rustikolía
Rennt frjálst
Partýbakki með ostahníf og skeið Efni: Kirsuberjaviður og stál. Lýsing: Fundið til efni og heflað til. Krossviðarskífu með platta á er límdur á miðju bæði bakka og fót. Sirkill notaður til að gera hring miðja platta notaður til að miðja hringinn. Sagað út í bandsöginni. Byrjað er á því að móta endann til að vinna á slættinum sem alltaf kemur hversu vel sem skífa og platti eru miðjuð. Fótur er mótaður að utan passlegur fyrir leguna, pússaður og borið á hann rustik. Bakki er mótaður að utan og síðan að innan með stalli fyrir litla salat- eða ídýfuskál, notað skálajárn og skrapur. Þegar búið er að móta er pússað vel með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír þar til búið er að vinna á rispum. Borin á rustikolía. Lega er fest á miðju fótarins. Borað í gegnum miðjuna á fætinum og fundinn miðjan á bakkanum til að staðsetja legu á miðju bakkans. Borað er á einum stað í gegnum legufestinguna og gegnum fótinn til að geta fest legu á bakkan. Lega staðsett á bakkanum og legan fest á hann. Rennt skaft á ostahníf og skeið sem fylgir með. Hnífurinn sjálfur og skeiðinn formuð úr rustfríu stáli. Borað í gegnum skaftið á skeið og hníf til að fá festingu í tréskaftið. Borað í tréskaftið, límt og hníf/skeið komið fyrir í skaftinu. Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía.
|
||||||||||
|
|
|||||||||||