|
|||||||||||
|
©
1999 - 2002 Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002 |
Tína/trafaaskja/bakki sveipaður
Efni:Kirsuberjaviður, koparþinna til skreytingar. Lýsing: Sveipur heflaður niður í 3.5-4 mm. Hann bleyttur og látið svo renna á hann heitt vatn í 20 mín. Honum sveipað utan um mót og látinn þorna þannig í 3-4 daga. Botnefni og lokefni fundið, heflað, límt saman og heflað svo niður í passlega þykkt þegar límið er þornað, passlegt 2-3 cm. Sveipur sagaður til þ.e. munstur á enda og fyrir skreytingu. Skreyting gerð og límd á sveipinn, sveipur límdur saman. Botn gerður eftir sveip. Botn fræstur eða sagaður í hjólsög fyrir sveipinn. Sveipur límdur á botn. Lok búið til mótað. Eyru, pinni og hald búið til úr því sem verður afgangs af botni og loki, formað til og pússað. Eyru límd á sveip. Hald límt á lok og pinni öðrum megin á lokið. Borað fyrir pinna á loki öðrum megin og í gegn fyrir lokpinna hinum megin. Allt pússað vel með sandpappír 120-240-320-400-800. Borinn á rustik olía, drekkt vel, þurrkað, látið þorna vel í nokkra klukkutíma, framkvæmt aftur nokkrum sinnum eftir síðustu umferð er pússað yfir með 1000 sandpappír. Yfirborðsmeðferð: Rustik olía og húsgagnabón.
Bakki sveipaður Sama aðferð og við tínuna
|
||||||||||
|
|
|||||||||||