|
|||||||||||
|
©
1999 - 2002 Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002 |
Viðarprufukassi
Efni: Kirsuber Lýsing: Efni fundið til og það heflað niður í rétta þykkt ca 15 mm og sagað niður í réttar lengdir. Ég tók þá ákvörðun að nota þetta stykki sem sýnistykki fyrir samsetningar og valdi því að setja sitthvora samsetningu á hvert horn. Ég byrjaði á geirneglingunni, gerði svo blöðun á eitt horn, 45° samsetningu á eitt horn og dílaði í gegn eitt horn. Þegar hornasamsetningum var lokið og hornin pössuðu vel saman voru hornin límd vel saman og þvingað. Þá var botnin tekin til og hann sagaður passlegur til að fella upp í kassan. Hann var svo límdur. Lok var rúnað með handhefli, kassi var svo sagaður í sundur í hjólsöginni svo kæmi passlegur hluti á lokið. Lok var svo límt á þann hluta þegar búið var að rétta hlutana af í afréttaranum. Gerð var festing í lokið fyrir bæklinginn og síðan voru lamir og krækja sett á kassan. Allt var pússað vel með 240-320-400-600 pappír og síðan borin á rustik olía. Eftir síðustu umferð af ruskik olíu var pússað yfir með 1000 pappír. Yfirborðsmeðferð: Rustik olía |
||||||||||
|
|
|||||||||||