|
Í
dag starfa ég sem deildarstjóri tölvumála
í Korpuskóla en það starf sem liggur þar
á bakvið byggist aðallega á því
að fá kennara og nemendur skólans til að nota
þann tæknibúnað sem til er í skólanum
og bæta við tæknibúnaðinn eftir þörfum.
Þetta starf gerir það að verkum að ég
nota tölvur og annan tæknibúnað daglega bæði
í vinnunni og heima hjá mér því
ekki þíðir að reyna að innleiða tæknikunnáttu
hjá öðrum nema stunda tæknina sjálfur.
Hér heima hef ég eina nettengda tölvu sem ég
á sjálf sem hefur öll þau helstu forrit
að geyma sem ég þarf á að halda. Hún
er með vefsíðugerðarforritin Dreamweaver og Frontpage,
myndvinnsluforritin Photoshop og Photodraw sem er Microsoft forrit.
Microsoft 2000 pakkan og fleiri forrit sem ég nota í
mínu starfi og fyrir börnin. Tölvan er nettengd
með venjulegu 56k módemi og með skrifara. Vegna starfa
minna fyrir Korpuskóla sem tölvuumsjónarmaður
þá er mér sköffuð fartölva sem
ég nota hér heima og í skólanum. Í
henni er samskonar módem, skrifari og DVD drif sem hefur
eiginlega ekki verið mikið notað til þessa. Hér
heima á ég skanna sem hefur verið mikið notaður
síðustu ár, vinn mjög mikið með myndir
og skjöl, hef óskaplega gaman af því að
breyta myndum, flíkka upp á gamlar myndir og þess
háttar. Einnig á ég til mjög góða
digital myndavél sem er einnig mjög mikið notuð
hér á heimilinu af öllum heimilismeðlimum.
Þessa tækni nota ég bæði til að
setja myndir út á vef, senda í rafpósti
og einnig bara til að prenta út á góðan
prentara sem ég átti þar til rétt fyrir
jólin þegar ég eftirlét móður
minni hann. Það stendur reyndar til að fá sér
annan en betri sem verður reyndar erfitt því gamli
prentarinn minn af Epson gerð er það tæki sem
ég hef notað mikið í gegnum tíðina
og er alveg frábær í myndvinnslu.
Tækniæði í Korpuskóla
Í skólanum er ég ásamt öðrum
kennurum, dyggilega studd áfram að byggja upp frábært
tækniver (því miður vantar bara húsnæðið)
til nota fyrir kennara og nemendur. Í skólanum höfum
við 32 borðtölvur og 20 fartölvur. Fartölvusettið
byggist á þráðlausum samskiptum við
innra net skólans en netsambandið í skólanum
í sítengt í gegnum línu.net. Í
skólanum er einnig digital myndavél, digital vídeóupptökuvél,
skanni, tölvutengd víðsjá, væntaleg
er vefmyndavél sem hægt er að taka upp 4 mínútna
myndbrot inn á og vinna með ásamt því
að nota hana sem venjulega vefmyndavél. Við höfum
hér líka skjávarpa sem er í aukinni
notkun hér, mjög líklega
komum við líka til með að eignast "smartboard"
töflu sem er einskonar tússtafla sem byggir á
gagnvirkni milli tölvu og hvítrar tússtöflu.
Nú eftir áramótin var líka keypt dacta
legosett sem reynir á stýringar vélmenna í
gegnum tölvur. Miðað við upptalninguna hér
að framan mætti halda að við séum með
tækjaæði í Korpuskóla, vissulega er
ég og við með tækjaæði enn aftur
á móti þá eru þetta allt tæki
sem eru í mikilli notkun í skólanum þó
í mismiklu mæli sé. Notkuninn gengur ágætlega
með nokkrum vandkvæðum stundum sem eru afgreidd samstundis.
Ég nota internetið mikið til upplýsingaleitar
og samskipta innanlands og utan. Kynntist því þó
ekki að ráði fyrr en í námi mínu
í KHí 1997-1999, byrjaði þá fyrst
að nota rafpóst í mjög litlu mæli sendi
og fékk ca 20 bréf á þessum þremur
árum. Í dag gæti ég ekki hugsað mér
lífið án rafpósts, sendi og fæ ca
70-80 bréf á dag og fer fjölgandi. Í mínu
starfi þarf ég að skoða forrit o.þ.h.
á netinu og sæki mikið forrit þangað.
Þegar ég var gjaldkeri nemendafélags Kennaraháskóla
Íslands 1998-1999 fékk ég í fyrsta skipti
GSM síma í hendur og hef ekki getað verið
án hans síðan. Hneisklaðist mikið af fólki
sem notaði þessa tækni áður en ég
kynntist henni og faldi símann fyrst eftir að ég
byrjaði að nota hann en komst fljótlega að þeirri
skoðun að án hans gæti ég ekki verið,
þó svo ég noti hann kannski ekki mikið.
Vef setti ég fyrst upp á námskeiði í
KHÍ 1997-1998 fyrir sjálfa mig og 1998-1999 fyrir
Nemendaráð KHÍ og nemendafélög KHÍ.
Ég sinnti minni síðu ekki lengi eftir að námi
mínu í KHÍ lauk en byrjaði vinnu aftur
við hana síðastliðið sumar til að koma
inn efni fyrir kennslu mína í Korpuskóla. Samhliða
hef ég verið að vinna síðu fyrir Korpuskóla
og fékk núna í nóvember það
verkefni að vinna síðu fyrir Smíðakennarafélag
Íslands sem er í vinnslu.
Ný
tækni
Nú síðast keypti ég mér lófatölvu
sem ég er farinn að nota á fullu til að skipuleggja
tíma minn, sem er mjög þéttskipaður.
Tæknin hefur breytt miklu fyrir mig, hún hefur m.a.
gert starf mitt mögulegt þ.e. tölvuumsjónina.
Það er eitt vandamál við tölvutæknina
og upplýsingaleitina en það er allur tíminn
sem fer í þessa vinnu. Það er svo auðvelt
að festast tímunum saman í þessari vinnu.
Ég gæti aftur á móti ekki hugsað
mér lífið án þessarar tækni.
Í dag skipulegg ég alla vinnu mína í
tölvunni, skrái allt inn, glósur ofl. sem ég
lét nægja að skrifa á blöð áður,
enda er það þannig í dag að ef ég
á ekki minnisnótur inni á tölvunni þá
fellur málið í gleymsku eða allavega tekur
mig fulllangan tíma að fletta í blöðum
til að finna upplýsingarnar.
Framtíðarsýn
Eftir tíu ár sé ég mig tala við
tölvurnar í stað þess að nota lyklaborð
eins og nú eða snertiskjái eins og á lófatölvunni
minni. Sú tækni á eftir að flýta
ansi mikið fyrir mér. Ég sé notkunina kannski
ekki mikið breytast miðað við hvernig hún
er í dag, því ég nota tölvuna til
allra þeirra nota sem ég get í dag og gæti
hugsað mér að nota hana í. Reyndar hef ég
ekki notað vefmyndavél mikið til þessa en það
stendur til bóta núna næstu vikur. Ég
sé ekki að tölvukennsla í grunnskóla
geti farið fram eingöngu í gegnum vef eins og hugmyndir
hafa verið uppi hjá fræðslustjóranum
í Reykjavík, ekki tæknileysis vegna eða
kunnáttuleysis á tæknina, heldur vegna agamála
og þörfinni á einstaklingskennslu. Ég get
ekki séð fyrir mér einn kennara staðsettan
í einum grunnskóla ætla sér að kenna
nemendum í tveimur til þremur grunnskólum til
viðbótar samtals 40-80 nemendum í einu í
gegnum netsamskipti þó svo að myndsamband sé
á milli þó svo að kannski væri sá
möguleiki æskilegur vegna kennaraskorts. Á heimilinu
hefði ég ekkert á móti því
að hafa tölvu/vélmenni sem ég gæti
látið um að vinna leiðinlegustu verkin á
heimilinu ásamt því að geta tímastillt
verkefni heimilisins. En þá held ég að komið
verði að því að tölvurnar stjórni
lífi okkar en ekki öfugt og hvaða gagn höfum
við að því.

|