|
Náttúran
og Alviðra Vefleiğangur fyrir 5.-8. bekk - Náttúrufræði Arndís
Hilmarsdóttir
Kynning
| Nemendur
| Viğmiğ
| Ferli
| Bjargir
| Mat
| Niğurstağa
| Upplısingar
| Nemendasíğa
Ástæðan fyrir því að ég samdi þennan vefleiðangur er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða verkefni sem ég á að gera í framhaldsnámi mínu í Tölvu- og upplýsingatækni og þar sem ég á að gera vefleiðangur þá finnst mér ástæðulaust að nýta hann ekki í kennslu fyrir skólann sem ég vinn í þ.e. Korpuskóla, en nemendur þaðan hafa farið í ferðir í Alviðru og hafa unnið svipuð verkefni eftir ferðirnar þangað, nema ekki í þessu formi. Vefleiðangurinn gengur út á það að safna efni, myndum, plöntu sýnum og viðtölum, eða skriflegu efni í ferð sinni í Alviðru, fylgjast vel með öllu sem þar er að gerast og vinna svo úr heimsókninni þegar heim kemur í formi vefsíðu í Dreamweaver eða Frontpage og fréttabréfs í Publisher eða kynningar í Powerpoint. Ég miða við að þessi leiðangur sé fyrir 5.-8. bekk og er það vegna þess að það er sá aldurshópur sem hefur farið að Alviðru hjá okkur í Korpuskóla. Nemendur hafa farið í þessa ferð með bekkjarkennurum og gert verkefnið í samfélagsfræði og náttúrufræði. Einnig getur þetta verkefni tengst t.d. Hönnun og smíði vegna trjágreiningarinnar. Um er að ræða ýmsa tölvuþjálfun og upplýsingarleit sem tengist svo tölvu- og upplýsingartækni. Það er nauðsynlegt að nemendur kunni grunnatriði í þeim forritum sem vinna á með, geti tekið myndir á digital vél, sett þær inn í tölvu, geti skannað myndir, hafi gert fréttabréf og búið til einfaldan vefleiðangur. Aðrir hlutir eiga nemendur að afla sér upplýsingar um meðan á vinnu stendur. Þegar nemendur hafa lokið þessu verkefni eiga þeir að geta greint algengustu fugla í sveitum á Íslandi, getað greint algengustu plöntur og þá helst tré sem ræktuð eru á Íslandi. Þeir eiga að geta skammlaust búið til vef með skipulega röðuðum upplýsingum, með myndum sem eiga við efnið, búið til fréttabréf eða kynningu um efni sem þeir hafa sett upp á vef. Nemendur læra einnig að vinna saman í hópum og skipuleggja vinnu sína og dreyfa henni á milli sín.
Um er að ræða samþættingu ýmissa greina til að framkvæma það sem beðið er um í leiðangrinum. Í greiningunum er verið að vinna með náttúrufræði, við alla vinnsluna er verið að vinna með tölvu- og upplýsingatækni og hönnun. Textavinnan reynir á íslensku, málfræði, stafsetningu. Myndvinnslan reynir á myndlist, hópastarfið og kynning reynir á lífsleikni og svo mætti lengi telja. Um er að ræða svolítið viðamikið verkefni sem hægt væri að nota í þemavinnu, vinna í lotum eða vinna í eina kennslustund til lengri tíma. Tímalengd fer eftir því hversu nemendur eru vel undirbúnir í upphafi, hversu hæfir þeir eru í tölvuvinnslu. Áætlað miðað við góða tölvufærni ætti verkið að taka a.m.k. 10-20 kennslustundir. Varðandi hópaskiptingu þá er best að hafa það í huga að setja saman í hópa, tölvufæran einstakling, málfarslega sterkan einstakling og einstakling sem er fær myndrænt séð. Allir þurfa þeir helst að vera klárir í að leita sér upplýsinga og koma upplýsingum frá sér. Leiðangurinn gerir engar sérstakar sterkar kröfur til kennarans umfram þetta venjulega, nema hann þarf að hafa aðgang að tölkukunnáttu manneskju eða vera tölvukunnáttu manneskja sjálfur. Nauðsynlegt er að hafa aðgang að einhverjum sem kann á vefsíðugerðarforrit og umbrots- eða kynningarforrit. Einnig þarf kennarinn að geta stjórnað umræðum þegar kemur að kynningunum. Tilbrigği Upplagt er að gera þennan leiðangur í samstarfi við bókasafnskennara, tölvukennara, myndmenntakennara og smíðakennara. Bókasafnskennarinn hjálpi til með upplýsingaleit, tölvukennarinn sjái um að hjálpa til með uppsetningu, myndmenntakennari hjálpi til með að breyta myndum og smíðakennari hjálpi til með trjágreiningu. Gott væri að hafa til staðar : Bekkjarsett af Bókinni um tré eftir Jón Guðmundsson ásamt fleirum. Bekkjarsett af bókinni um fugla á Íslandi eftir?????? Aðgang að vefsvæði til birtingar á vefsíðum. Forritin aðgengileg í tölvum sem talað hefur verið um. Nauðsynlegt er að hafa aðgang að interneti og eftirfarandi slóðum: Heimasíða fræðslusetrisins að Alviðru Friðlýstar plöntur Válisti yfir fugla í útrýmingarhættu Fuglasíða Arnars Óskarssonar Myndir af lífríki lands og sjávar teikningar/myndabanki Myndabanki með ýmsum myndum Plöntulisti Fossvogsstöðvar Garðyrkjustöðin Grísará Lífsferlar í náttúrunni fuglar Fuglalíf á Selfossi
Þessi leiðangur byggir á góðri samvinnu hópmeðlima sem vinna saman að verkefni og góð leið til að efla samskipti milli nemenda og hópavinnu. Nemendur þurfa að vera nokkuð tölvuhæfir og ef þeir hafa ekki verið það fyrir leiðangurinn þá er einna vísta að þeir verða það eftir að hafa unnið þennan leiðangur. Einnig eflir þessi leiðangur samvinnu milli kennara sem kenna tiltölulega ólíkar greinar. Leiðangurinn reynir á ýmsa þætti hjá nemandanum. Um er að ræða nokkra þætti til að koma frá sér efni eins og að hann þarf að geta komið efni frá sér í formi ritaðs máls, myndræns máls og talaðs máls. Einnig reynir leiðangurinn á öflun gagna og að miðla gögnum frá sér á réttan hátt. Mynd efst á síðu tekinn í Alviðru er tekinn af Vilhelmínu Þorvarðardóttur kennara í Korpuskóla haustið 2001. Bakgrunnsmynd er tekinn af mér sjálfri úti í London og unnin í fireworks. Upplýsinga leitaði ég mér af netinu og í þeim bókum sem tiltekið er í bjargalista. Torfi Hjartarson byggği á sniği frá The WebQuest Page og ımsum gögnum á şeim vef í júlí 2000. Erlenda fyrirmyndin var şá frá 15. ágúst 1999. |