Náttúran og Alviðra

Nemendasíða

Vefleiðangur fyrir 5.-8. bekk - Náttúrufræði

Arndís Hilmarsdóttir
arndis@ismennt.is

Kynning | Verkefnið | Ferli | Mat | Niðurstaða | Upplýsingar | Kennarasíða

 


Kynning

Nemendum í 1.-10. bekk er boðið að heimsækja fræðslusetrið í Alviðru og kynnast náttúrunni/starfseminni þar, ýmist að hausti eða vori. Í tengslum við þessar ferðir eru nemendur látnir gera ýmiss verkefni. Verkefnið hér er að greina plöntur sem safnað er í svona heimsókn að hausti og þekkja fugla sem sjást á ferli ýmist í vorferð eða haustferð.


Verkefnið

Meginmarkmiðið með þessum leiðangri er að kynnast Alviðru og greina í sundur plöntur sem tíndar hafa verið í heimsókn á staðinn og skoða fuglalíf á staðnum.

Þið setjið ykkur í stellingar eins og blaðamenn sem fara í heimsókn í Alviðru. Komist að leyndarmálum staðarins, forvitnist um hvað sé verið að gera þar, hverjir starfsmennirnir eru, hvað þessir starfsmenn eru að vinna við o.s.frv. Einnig eigið þið að greina plöntur sem þið finnið á staðnum. Takið myndir af þeim fuglum sem þið sjáið á staðnum. Takið myndir af öllu því sem ykkur finnst athyglivert því þær geta nýst ykkur við úrvinnslu.

Til þess að geta lokið þessu verkefni þá þurfið þið að setja upp vefsíðu t.d. í Dreamweaver eða Frontpage og útbúa lítið fréttabréf eða kynningu í t.d. Publisher eða Powerpoint. Þið þurfið helst að hafa stafræna myndavél og geta komist í að skanna myndir og lauf.


Ferli

  1. Ykkur verður skipt í þriggja manna hópa sem eiga að vinna saman að þessu verkefni.
  2. Þið eigið að skipta með ykkur verkum í ferðinni. Einn þarf að skrifa niður minnispunkta, einn þarf að taka myndir á staðnum og sá þriðji safnar saman mismunandi plöntum og laufi (a.m.k. af 10 mismunandi plöntum). Takið eftir að þið eigið öll að fylgjast með því sem ykkur er sagt í ferðinni. Verið óspör í því að spyrja leiðbeinendur á staðnum um allar upplýsingar sem ykkur dettur í hug að geti nýst ykkur í nánari úrvinnslu.
  3. Þegar heim er komið byrjið á því að pressa og þurrka plönturnar ykkar sem þið söfnuðuð í ferðinni. Skannið þau þegar þau eru orðinn almennilega þurr.
  4. Búið til vefsíðu um Alviðru þar sem koma fram aðstæður í Alviðru, upplýsingar um starfsfólk, Hvað þið sáuð á staðnum, hvað gert er á staðnum, hver á staðinn o.s.frv.
  5. Búið til tengla á síðuna einn fyrir plöntugreininguna og einn fyrir fuglagreiningu. Búið til síður fyrir þessa tengla þar sem þið setjið upp plöntugreininguna annars vegar og fuglagreiningu hins vegar. Setjið upp skönnuðu myndirnar og skrifið það helsta um hverja tegund sem tengjast plöntunum ykkar á plöntugreiningarsíðuna og gerið eins fyrir fuglagreininguna nema notið helst þá myndir sem þið hafið sjálf tekið á staðnum.
  6. Búið til tenglasíðu þar sem þið setjið inn tengla sem þið notið og einnig upplýsingar um heimildir.
  7. Búið til fréttabréf í Publisher eða kynningu í Powerpoint þar sem það helsta kemur fram sem þið settuð á síðuna ykkar og jafnvel meiri upplýsingar, um eitthvað skemmtilegt sem gerðist í ferðinni o.s.frv. Notið þessa kynningu til að koma vefsíðunni ykkar á framfæri við nemendur og kennara í skólanum ykkar og ekki hvað síst við foreldra ykkar.

 


Mat

Vinna ykkar verður metin þannig að bæði er tekið til greina vinna ykkar sem einstaklinga og einnig sem hópur. Reynt er að meta verkefnið á sem víðustum grunni. Tekið er t.d. til greina hvernig unnið er á staðnum, hvernig unnið er úr heimildum, uppbygging vefsíðu, hvernig efnið er kynnt, hvernig unnið er með myndir, hvernig heimilda er getið, sjálfstæð vinnubrögð, hvernig hópavinnan er, nemendur meta vinnu sína sjálfir og bekkurinn metur vinnu hvers hóps þegar verkefnið hefur verið kynnt.

Markmið /atferli

Byrjandi

1

Í framför

2

Fullfær

3

Meistari

4

Stig

 

Unnið með myndir
Getur tekið myndir á eigin spýtur. Getur skannað myndir á eigin spýtur. Getur skannað inn myndir, flutt myndir af stafrænni myndavél á eigin spýtur. Getur breytt myndum í myndbreytiforriti á eigin spýtur, vistað fyrir vefinn og sett þær inn í vefskjal. Heimilda getið þar sem það á við. 20%

 

Vefsíður
Texti á vefsíðu í lagi. Myndir og texti á vefsíðu harmonerar saman. Tenglar á vefsíðu passar saman við annað efni. Gerir vefsíður með aðgengilegu viðmóti, tenglar í lagi, myndir í lagi, texti í lagi, rétt vistaður. Heimilda getið þar sem það á við. 20%

 

Greiningar
Grunngreining nafn passar. Myndir og nafn passar saman á báðum greiningum Fróðleikur passar vel við nafn og myndir. Myndir, nafn og fróðleikur á báðum greiningum passar saman. Heimilda getið þar sem það á við. 20%

 

Um Alviðru
Greinir frá staðháttum. Greinir frá helstu þáttum í staðháttum og starfsemi. Segir skemmtilega frá og í samfelldu máli um það sem gerðist í ferðinni og starfsemi. Meðhöndlar til fyrirmyndar upplýsingar um staðinn, verkefni o.þ.h. og samræmir upplýsingar með myndum. Heimilda getið þar sem það á við. 20%

 

Kynning/hópavinna
Einstaklingarnir í hópnum segja frá því sem gerðist í ferðinni. Hópurinn segir frá verkefninu. Hópurinn skiptir með sér verkum og segir frá heimsókninni og niðurstöðum verkefnisins. Hópurinn er samhentur í kynningu sinni, segir skemmtilega frá og setur fram skemmtilega kynningu með myndum og texta. Heimilda getið þar sem það á við.
20%


Niðurstaða

Ef þú hefur farið nákvæmlega eftir þeim leiðbeiningum sem komið hafa fram hér fyrr og lesið þér til þá átt þú að vera nokkuð fær um að segja frá fugla og plöntulífi í Alviðru. Einnig áttu að geta sagt öðrum nemendum frá því hvað er að gerast á þessum stað, hvaða verkefnum er unnið að þar og hver á staðinn og rekur hann. Sumt af þessu efni nýtist þér til að greina aðstæður annars staðar eins og t.d. í kringum Reykjavík, hvernig fuglar eru á Reykjarvíkursvæðinu, hvernig plöntur eru hugsanlega þar o.s.frv.


Upplýsingar og heimildir

Heimasíða fræðslusetrisins að Alviðru

Friðlýstar plöntur

Válisti yfir fugla í útrýmingarhættu

Fuglaverndarfélag Íslands

Fuglasíða Arnars Óskarssonar

Myndir af lífríki lands og sjávar teikningar/myndabanki

Myndabanki með ýmsum myndum

Plöntulisti Fossvogsstöðvar

Jón Guðmundsson, Bókin um Tré

Garðyrkjustöðin Grísará

Lífsferlar í náttúrunni fuglar

Fuglar.is

Fuglalíf á Selfossi

Trjágreining

Óskar Ingimarsson, 1992, Myndskreytt flóra Íslands og N-Evrópu. Reykjavík, Skjaldborg.

efst á síðu


Torfi Hjartarson byggði á sniði frá The WebQuest Page og ýmsum gögnum
á þeim vef í júlí 2000. Erlenda fyrirmyndin var þá frá 15. ágúst 1999.
Einnig var litið til þýðingar Salvarar Gissurardóttur á eldra sniði frá 1999.