|
6.
Námsumhverfi á vefnum og netsamskipti (1
ein)
Námsumhverfi á vefnum og netsamskipti.
Í tengslum við þetta hef ég sett
inn umræðuframlög á Webboard, en
einnig tók ég þátt í
UT 2002
með kynningu á tölvukennslu
í Korpuskóla.
Hér áttum við líka að prófa
einhver verkfæri á vefnum. Ég hef
verið að prófa javascriptir og setja þær
inn á vefsíður mínar, t.d. á
forsíðunni minni er hægt að nálgast
kóða í ASCHII töflunni sem ég
þarf að nota mikið í minni vinnu.
Einnig á persónulegu síðunni
minni er hægt að finna út hvaða vikudag
maður er fæddur, þessa kóða
fékk ég á þessari síðu
en þurfti að breita kóðanum fyrir
afmælisdaganna til að íslenska, gat reyndar
ekki íslenskað fullkomlega. Einnig hef ég
verið að nota gestabækur, vefumræðusvæði
og annað efni hjá Bravenet
fyrir mig, skólasíðuna
og smíðakennarafélagið.
Sett upp teljara hjá íslensku fyrirtæki
sem heitir teljari.is,
einnig gruflaði ég aðeins í Hot
Potatoes til að búa til verkefni til að
setja á vefinn og setti á tölvukennsluvefinn.
Hér áttum við líka að gera
áætlun fyrir námskeið sem notar
Netið, þ.e. hanna námsumhverfi. Í
lokaverkefninu mínu nota ég þetta
námskeiðsform. Hef sett upp umgjörð
utan um alla tölvukennslu
í Korpuskóla fyrir kennara og nemendur til
að nýta.
Þeir
vefir sem ég hef verið að glíma
í vetur auk þessa er vefur Korpuskóla
og vefur FÍS
smíðakennarafélagsins.
|