|
Kennsluverkefnabanki
Arndísar
verkefni
unnin í smíðadeild KHÍ og Korpuskóla
Kennsluverkefni
fyrir 9 ára
Heiti:
Endurnýtingarverkefni
Tímalengd
2-3 kennslustundir
|
Markmið:
|
Nemendur
öðlist færni við að nota límbyssu,
þekkingu á að hægt er að nýta
ýmislegt í umhverfinu til að búa til
skraut og skapi sína eigin persónu, með sínum
formerkjum.
|
|
Efni:
|
Hverskyns
efni sem tilfellur í umhverfi okkar, í kalla þarf
steina úr fjörunni, í hendur eru t.d. notað
ál úr áldósum eða þang úr
fjörunni, í hár er hægt að nota spæni
úr smíðastofunni, eða ál úr
áldósum. Í kertastjaka er notaðar áldósir
sem kliptar eru niður. Í platta undir eru notaðar
spítur sem tilfalla í smíðastofunni.
|
|
Áhöld:
|
Sandpappír,
Epoxy lím, Límbyssa, skæri.
|
|
Innlögn:
|
Byggja
innlögn á því hvernig við notum Epoxy
lím, verkun þess og í hvaða tilfellum
betra er að nota slíkt lím fram yfir aðrar
límtegundir. Brýna aðgæslu við notkun
límbyssu, hvenær hentugt er að nota límbyssu,
í hvaða tilfellum hentar hún ekki.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Byrjum
á því að sína nemendum sýnishorn
af karli, förum svo í fjöruferð. Þar
tína nemendur til steina og annað sem hægt væri
að nota við gerð karlana, t.d. ýmislegt sem
hent hefur veirð í sjóinn en ætti ekki
að vera þar. Þegar nemendur koma aftur inn í
skólastofina er innlögnin tekin fyrir þ.e. meðferð
líms. Þá er þeim sýnt lið
fyrir lið hvernig best er að líma karlana saman.
Þegar því er lokið þá fá
þau steina í hendur, þau velja hvernig þau
vilja hafa sína karla í laginu, stóra, litla,
feita eða mjóa og velja saman steina með tilliti
til þess. Þau nota svo þau efni sem þau
vilja nota til að setja hendur, og annars konar skreytingu.
Búa til kertastjakan úr áldós, klippa
í ræmur og mála. Líma svo karlana og
kertastjakan á platta eftir að hafa pússað
hann til. Fígúrurnar og plattarnir málaðir
eða lakkaðir.
|
|
Námsmat
|
Hlutur
metinn eftir þeim markmiðum sem sett eru í upphafi.
Hægt er t.d. að meta hlut eftir hugmyndaauðgi við
val á endurvinnanlegum efnum, vandvirkni og virkni nemendans
í tímum.
|
Kennsluverkefni
fyrir 11 ára
Heiti:Skreyting
nytjahlutar með koparfólíu, spilakassi.
Tímalengd
3-4 kennslustundir
|
Markmið:
|
Nemendur
öðlist færni til að beita þeim verkfærum
sem notuð eru þegar unnið er með koparfólíu,
öðlist þekkingu á þeim efnum sem hægt
er að nota til að breita útliti koparsins, nýti
sköpunhæfileika sína til að hanna sinn nytjahlut
eftir eigin hugmynd og skreyta hann með eigin mynd.
|
|
Efni:
|
Í
spilakassan, Álmur í kassa, lamir og lás
á kassan, naglar. Koparfólía til skreytingar.
|
|
Áhöld:
|
Sög,
hornþvingur, hamar, þvingur, trélím,
kontaktlím, svampur, blýantur.
|
|
Innlögn:
|
Byggja
innlögn á því hvernig við notum hornþvingur
og í hvaða tilfellum er betra að nota venjulegar
þvingur og hvænær er betra að nota hornþvingur.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Byrjum
á því að sýna nemendum sýnishorn
af ýmsum nytjahlutum sem þau geta gert. Flóknari
hluti eins og t.d. hvernig kassi er búinn til förum
við vel í lið fyrir lið. Hliðar útbúnar
og límdur saman rammi úr þeim, notað til
þess hornþvingur. Þegar því er
lokið er botninn límdur á ramman og þvingað
saman með venjulegum þvingum. Þá er lok
útbúið, lamir settar á og loka ef við
viljum hafa loku. Hægt er að hólfa kassan niður
með þunnum spítum í þessu tilfelli
er um að ræða spilakassa sem rúmar tvo spilastokka
sitt hvorum megin við blaðabunka. Þegar búið
er að gera kassan er koparfólían gerð, gerð
mynd á blað til að setja á fólíuna,
hún merkt yfir á fólíu, fólíu
snúið við sett á svamp og mynd þrýst
út með blýanti eða díl sem búið
er að gera odd á, ekki þó of hvassan.
Þegar búið er að gera mynd eins og hún
á að vera þarf að ganga frá henni,
ef mynd er stór þarf að nota sparsl til að
fylla upp í hana, pússa með sandpappír
þegar sparslið er þornað, bera á brennisteinslifur
og forma útlínur með skærum þannig
að myndin komist á þann hlut sem hún á
að vera á. Síðan er borið kontaktlím
á báða fleti beðið eftir að það
þornar og hlutarnir svo settir saman. Þegar myndin
er komin á er hægt að bera rustikolíu
eða matarolíu á viðinn.
|
|
Námsmat
|
Hlutur
metinn eftir þeim markmiðum sem sett eru í upphafi,
t.d. hugmyndaauðgi og hönnun nemandans, vandvirkni og
virkni nemandans í tímum.
|
Kennsluverkefni
fyrir 13-14 ára
Heiti:Rafdrifin
bíll
Tímalengd
8-10 kennslustundir
|
Markmið:
|
Nemandi
öðlist færni á að útbúa
drifbúnað í bíl, þekkingu á
virkni rafbúnaðarins og hanni sína eigin yfirbyggingu
á bíl eftir eigin forsendum.
|
|
Efni:
|
Botn
úr krossvið, furulistar í hliðum, dekk úr
t.d. MDF, öxlar úr dílum, mótor, skífur
fyrir teygju, yfirbygging úr trefjaplasti.
|
|
Áhöld:
|
Sög,
lím, skrúfjárn, lóðbolti, tin
til að lóða með, þvingur, tengivírar,
ofn fyrir vakúmformun, þjalir og sandpappír.
|
|
Innlögn:
|
Byggja
innlögn á því hvernig rafkerfi bílsins
virkar, t.d. mun á plús og mínus, hvað
gerist ef við tengjum plúshluta rafhlöðu við
mínushluta mótors og öfugt.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Byrjum
á því að sýna nemendum eintak af
bíl. Látum þau svo búa til undirvagninn,
útbúa drifkerfi bílsins og fjarstýringu
ef við á. Þegar undirvagn er tilbúinn
geta þau mótað hús bílsins úr
MDF kubbi jafnstórum og undirvagninn er. (gott er að
móta hann fyrst úr pappa eða álpappír
til að fá tilfinningu fyrir hlutföllum) Forma
kubbinn til með brettum ef við á og vakúmforma
svo húsið með trefjaplasti. Athuga þarf vel
takmarkanir, halla og að ekki fari innundir vegna vakúmformunarinnar.
Þá er eftir allur frágangur, pússivinna,
yfirborð, lökkun o.þh.
|
|
Námsmat
|
Hlutur
metinn eftir þeim markmiðum sem sett eru í upphafi,
t.d. leikni við að útbúa drifbúnað,
hugmyndaauðgi í hönnun, þekkingu á
hvernig drifkerfið virkar.
|
Kennsluverkefni
fyrir 6-8 ára
Heiti:
Geymslubox
Tímalengd
2 kennslustundir
|
Markmið:
|
Nemendur
öðlist færni á að nota límbyssu,
þekkingu á hvernig best er að nota límbyssu
og hvenær best er að nota önnur lím og að
nemendur skapi sína eigin afurð með því
að hanna sína eigin kassa, hversu stórir eða
smáir þeir eru og hvernig lokur þeir vilja
nota.
|
|
Efni:
|
Trébútar
í endana, bylgjupappi, lakk, málning, rustikolía,
bönd eða vírar í lokurnar, teinar,
|
|
Áhöld:
|
Skæri
eða hnífur, límbyssa, vinkill og blýantur
til að merkja með.
|
|
Innlögn:
|
Notkun
á límum, hvenær er notað heitt lím,
hvenær trélím, hvenær tveggja þátta
lím og hvenær kontakt lím.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Nemendur
teikna niður öskjuna eins og þeir vilja hafa hana.
Síðan finna þeir sér búta til að
hafa á endunum. Sníða svo bylgjupappan eftir
endastykjunum, þurfa að mæla endastykkin svo þeir
viti hversu langur pappinn þarf að vera. Staðsetja
lokurnar á réttum stöðum og festa þær
niður, setja tein inn í lykkju á böndum/vírum
til að festa betur niður. Mála endastykkin, rustikbera
eða lakka þau. Líma svo pappan á endastykkin.
|
|
Námsmat
|
Byggist
á markmiðum, iðni, ástundun og vandvirkni.
|
Kennsluverkefni
fyrir 9-10 ára
Heiti:
Fígúrur í bandi
Tímalengd
4 kennslustundir
|
Markmið:
|
Að
nemendur öðlist færni í að bora og saga
út, þekkningu á hvernig sagablöð
eru sett í sagirnar og skapi sínar eigin fígúrur
með eigin hönnun.
|
|
Efni:
|
4
mm MDF plötur, bútað niður í passlegar
stærðir til að takmarka stærð fígúru,
kubbar litlir úr t.d. furu, bönd, kúlur, lím
og málning.
|
|
Áhöld:
|
Borvél,
útsögunarsagir og þvingur. Gott er að eiga
til stóra nál til að þræða bandið.
|
|
Innlögn:
|
Hvernig
sagablöð eru sett í sögina og hvernig söginni
er beitt.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Nemendur
teikna á blað sína fígúru og stykkið
sem fígúrurnar hanga í. Þeir flytja
svo teikninguna yfir á MDF plötu í gegnum kalkipappír.
Þá saga þeir út fígúrurnar,
þjala og pússa vel alla kanta. Fá hjá
kennara tilbúna passlega kubba sem þeir bora göt
í gegnum. Festa kubbana á fígúrurnar
í réttri stellingu, þ.e. á fígúrunni
vísa götin á ská upp að hausnum
og 90° á toppstykkinu. Fígúrurnar eru svo
málaðar og að lokum eru böndin þrædd
í gegn og lúlur settar á endana niðri.
|
|
Námsmat
|
Er
markmiðum náð, iðni ástundun og vandvirkni.
|
Kennsluverkefni
fyrir 11-12 ára
Heiti:
Púsluspil
Tímalengd
6 kennslustundir
|
Markmið:
|
Að
nemendur öðlist færni til að nota tifsög,
þekkingu til að vita hvernig sagblöð eru sett
í tifsögina, að nemendur skapi með hönnun
sinni sitt eigið púsluspil.
|
|
Efni:
|
MDF
plötur, lím, lakk og málning.
|
|
Áhöld:
|
Tifsög,
þjalir, sandpappír, þvingur.
|
|
Innlögn:
|
Til
eru margar aðferðir við púslgerðina, ein
er að teikna mynd, mála og saga svo út önnur
er að nota ljósmynd sem límd er á flötin
og lakkað yfir sú aðferð verður lögð
inn hjá nemendum.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Nemendur
eru látnir hanna sitt púsl heima, hvernig þeir
vilja gera það, og látnir ákveða hvora
aðferðina þeir vilja nota. Þeir sem vilja
nota aðferðina að líma mynd koma með myndina
með sér og líma hana með ljósmyndalími
á MDF plötu, lakka svo yfir myndina 2-3 til að
fá góða húð utan á. Hinir
sem vilja hina aðferðina byrja á því
að teikna myndina á blað og flytja hana svo yfir
á MDF plötu og mála hana. Hjá báðum
hópum er nú komið að því að
saga út bitana og raða þeim svo saman.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun,vandvirkni og er markmiðum náð.
|
Kennsluverkefni
fyrir 13 ára
Heiti:
Bókastoðir
Tímalengd
4 kennslustundir
|
Markmið:
|
Að
nemendur öðlist færni í að nota tifsög,
þekkingu á hvernig sagblöð eru sett í
tifsögina og skap eigin bókastoðir með eigin
hönnun.
|
|
Efni:
|
Viður,
málmur, lím, skrúfur,
|
|
Áhöld:
|
Borvél,
þvingur.
|
|
Innlögn:
|
Nemendum
er kennt meðferð þvinga og hvers ber að varast
þegar verið er að þvinga hluti.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Nemendur
eru látnir hanna sínar eigin bókastoðir,
annað hvort bæði blandað málmi og tré
eins og sýnishorn eða bara úr tré, eða
bara úr málmi. Eina forskriftin er að þær
þurfa bæði að hafa hagnýtt og listrænt
gildi. Nemendur gera svo sínar stoðir í samráði
við kennara.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun,vandvirkni og er markmiðum náð.
|
Kennsluverkefni
fyrir 14 ára
Heiti:
Kassi m/loki
Tímalengd
8 kennslustundir
|
Markmið:
|
Að
nemendur öðlist færni í að setja saman
kassa rétt, þekkingu á hvernig lamir eru settar
á kassa og sköpun þeirra komi fram í
hönnun eigin kassa á sínum forsendum.
|
|
Efni:
|
Viður,
lamir, lokur, lím, skrúfur, naglar, yfirborðsefni.
|
|
Áhöld:
|
Þvingur,
skrúfjárn, borvél,
|
|
Innlögn:
|
Farið
er í það með nemendum hvers ber að gæta
þegar kassi er settur saman, kennt að nota vinkil til
að kassin verði vinkilréttur og ítrekað
hvernig best er að nota þvingur
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Nemendur
eru látnir hanna sína kassa heima fyrir. Þeir
velja svo efni í samráði við kennara. Þá
er komið að því að pússa og setja
saman kassan, setja botn í og lok. Ef lokið er með
lömum þarf að ákveða hvort þær
eru utan á eða hvort tekið er úr fyrir þeim
og þær settar í. Að endingu er kassinn
pússaður og hann málaður, bæsaður,
lakkaður eða rustikborin.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun,vandvirkni og er markmiðum náð.
|
Kennsluverkefni
fyrir 15 ára
Heiti:
Taflborð ásamt hirslum undir taflmenn
Tímalengd
10 kennslustundir
|
Markmið:
|
Að
nemendur öðlist færni í að gera taflborð
og hirslu undir taflmenn, þekkingu á samsetningum
taflborða, skapi eigin afurð með því
að hanna sín taflborð og hirslur sjálfir.
|
|
Efni:
|
Viður,
lamir, lokur, lím, skrúfur, naglar, yfirborðsefni.
|
|
Áhöld:
|
Þvingur,
skrúfjárn, borvél,
|
|
Innlögn:
|
Farið
í samsettningar á taflborðum, hægt er
að saga niður reiti úr ólíkum við
og líma þá á víxl eða snúa
bútunum á víxl, einnig er hægt að
mála reitina eða eins og í sýnishorninu
að saga á milli reita og bæsa.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
Nemendur
eru látnir hanna sín taflborð og öskjur
heimafyrir, þeir velja svo efni í samráði
við kennara og þá aðferð sem hentar hverjum
og einum eftir færni hvers og eins. Taflborðin eru svo
sett saman og öskjur gerðar undir taflmenn.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun,vandvirkni, frumlegheit og er markmiðum náð.
|
Kennsluverkefni
fyrir umglinga
Heiti:
Samkveikt næla eða hálsmen með merki skóla
eða íþróttafélags
Tímalengd
kennslustundir 4-6
|
Markmið:
|
Að
nemandi:
| |
Öðlist
færni í að undirbúa hluti fyrir silfurkveikingu
og kveiki saman. |
| |
Þekki
hvernig silfurkveiking er framkvæmd og öryggisatriði
tengd henni. |
| |
Hanni
og búi til eigin nælu/hálsmen/eyrnalokka.
|
|
|
Efni:
|
Silfur,
kopar, messing, nýsilfur.
|
|
Áhöld:
|
Sög,
gastæki, slípivél, hamrar, púnsar,
tangir, þjalir, sandpappír.
|
|
Innlögn:
|
Framkvæmd
silfurkveikingar.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
- Skartgripurinn
er hannaður og teiknaður á blað.
- Þegar
endanleg útgáfa er fundinn eru hlutarnir teiknaðir
á blað og þeir klipptir gróflega út.
- Forminn
eru límd á viðeigandi málm með
trélími og söguð svo út.
- Formin
eru sverfð á köntum með þjöl
og pússuð vel.
- Formin
eru kveikt saman með slaglóði, látinn
í sýru til að hreinsa og pússuð
ef með þarf.
- Skartgripurinn
er póleraður, fest á hann nælufesting
ef um nælu er að ræða, borað fyrir hring
ef um hálsmen er að ræða og sett keðja
eða leðurreim í.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun, hugmyndavinna, vandvirkni og markmiðum náð.
|
Kennsluverkefni
fyrir unglinga
Heiti:
Sólarorkuhringekja
Tímalengd
kennslustundir 6-8
|
Markmið:
|
Að
nemandi:
| |
Öðlist
færni í að saga út form. |
| |
Þekki
hvernig hlutur er útbúinn sem gengur fyrir sólarorku.
|
| |
Hanni
og búi til skemmtilegt leikfang og listmun.
|
|
|
Efni:
|
Ál
plötur, álrör, viður, vírar.
|
|
Áhöld:
|
Sög,
slípivél, tangir, þjalir, sandpappír.
|
|
Innlögn:
|
Tengingar
á sólarrafhlöðu við mótor.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
- Hluturinn
er hannaður með tilliti til þess að hægt
sé að snúa honum í hringi með sólarorku.
- Hlutarnir
eru sagaðir út.
- Kantar
eru sverfðir og hlutarnir pússaðir vel.
- Borað
er fyrir vírum á fígúrurnar til
að hægt sé að hengja þá upp.
- Undirstaðan
fyrir sólarrafhlöðuna er útbúinn,
borað í hana fyrir mótor og rafhlöðuna.
- Rör
er fest á kubb sem borað er í fyrir mótorinn
og hann festur á mótorinn.
- Gerð
göt í rörið fyrir pinna sem halda út
hringekjunni.
- Fígúrurnar
festar á pinnana.
- Lakkað,
málað eða rustikborinn viðurinn.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun, hugmyndavinna, vandvirkni og markmiðum náð.
|
Kennsluverkefni
fyrir umglinga
Heiti:
Röraórói
Tímalengd
kennslustundir 2-6
|
Markmið:
|
Að
nemandi:
| |
Öðlist
færni í að nota röraskera. |
| |
Þekki
hvernig rörskeri er notaður. |
| |
Hanni
og búi til óróa.
|
|
|
Efni:
|
Silfur,
kopar, messing, nýsilfur, rör úr sömu
málmum, bönd, vírar.
|
|
Áhöld:
|
Sög,
slípivél, hamrar, rörskeri, tangir, þjalir,
sandpappír.
|
|
Innlögn:
|
Notkun
rörskera.
|
|
Mynd:
|
|
|
Verklýsing
|
- Byrjað
er á því að hanna óróann
og þá helst hvernig hengja á hann upp.
- Formað
er til toppurinn sem rörin hanga í, ferningslaga,
þríhyrningslaga, hringlaga eða hvernig sem
er.
- Rörin
eru skorin í rörskera misjafnlega löng.
- Borað
er í gegnum þau svo hægt sé að
festa í bönd eða vír.
- Borað
er einnig í toppinn til að festa upp rörin.
- Allir
hlutarnir eru pússaðir vel og póleraðir.
- Hlutarnir
eru festir á rétta staði.
|
|
Námsmat
|
Iðni,
ástundun, hugmyndavinna, vandvirkni og markmiðum náð.
|
Á
heimasíðu Arndísar
Síðast
uppfært
19.05.2002
Síðan
er enn í vinnslu!!!!!
Efst
á síðu
Ef
þú hefur einhverjar spurningar sem þú villt
koma til mín eða upplýsingar um ritvillur á síðunni
þá smelltu endilega á myndina hér fyrir neðan
og sendu mér í rafpósti

|