Smíðaverkefni sem unnin voru
í smíðavali í Kennaraháskóla Íslands
lýsingar með myndum
Tína/trafaaskja
Efni:Kirsuberjaviður, koparþinna til skreytingar.
Lýsing:
- Sveipur heflaður niður í 3.5-4 mm.
- Hann bleyttur og látið svo renna á hann heitt vatn í 20 mín.
- Honum sveipað utan um mót og látinn þorna þannig í 3-4 daga.
- Botnefni og lokefni fundið, heflað, límt saman og heflað svo niður í passlega þykkt þegar límið er þornað, passlegt 2-3 cm.
- Sveipur sagaður til þ.e. munstur á enda og fyrir skreytingu.
- Skreyting gerð og límd á sveipinn, sveipur límdur saman.
- Botn gerður eftir sveip.
- Botn fræstur eða sagaður í hjólsög fyrir sveipinn.
- Sveipur límdur á botn.
- Lok búið til mótað.
- Eyru, pinni og hald búið til úr því sem verður afgangs af botni og loki, formað til og pússað.
- Eyru límd á sveip.
- Hald límt á lok og pinni öðrum megin á lokið.
- Borað fyrir pinna á loki öðrum megin og í gegn fyrir lokpinna hinum megin.
- Allt pússað vel með sandpappír 120-240-320-400-800.
- Borinn á rustik olía, drekkt vel, þurrkað, látið þorna vel í nokkra klukkutíma, framkvæmt aftur nokkrum sinnum eftir síðustu umferð er pússað yfir með 1000 sandpappír.
Yfirborðsmeðferð: Rustik olía og húsgagnabón.
Bakki
sveipaður
Sama aðferð
og við tínuna
Hönnunarverkefni
Kortastandur á hjól
Efni: Beyki, krossviður, nýsilfur, plexigler.
Lýsing:
- Listar útbúnir með rauf fyrir plexigler.
- Útbúinn rammi á krossviðarplötu í stærð
sem hentar landakorti, en sem einnig er í heppilegri stærð
fyrir hjól.
- Útbúið undir rammanum festing sem hægt er að
nota til að snúa kortastandi langsum og þversum.
- Útbúinn festing á hjólið sjálft í
þessu tilfelli úr nýsilfri sem festist á hjólið
þannig að stýri er tekið upp og það sett í
gegnum gatið á standinum og skrúfuboltinn á stýrinu
notaður til að festa standinn niður.
- Sagað niður plexigler sem hentar í raufina á rammanum.
- Pússað vel yfir allt saman með 120-240-320 pappír.
- Borin á rustik olía.
Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía
Smádótahilla.
Efni:
Fura.
Lýsing:
- Efni fundið og sagað niður í heppilegar lengdir,
heflað í afréttara og í þykktarhefli.
- Rammin fyrir hilluna útbúinn, söguð 45° horn.
- Rammi límdur saman.
- Útbúið þakið á hilluna sagað út
gráðan fyrir mæninn.
- Þakið límt á.
- Hillurnar litlu eru núna gerðar mælt fyrir þeim og
þær sagaðar í réttum lengdum.
- Byrjað er á því að líma stoðir fyrir
hillur og hillurnar látnar vera uppi og niðri til að rétta
stoðir af, vinkill notaður til að vera alveg viss.
- Þegar búið er að líma stoðir er mælt
fyrir hillunum beggja megin á stoðirnar og hillurnar svo límdar
á rétta staði.
- Útbúinn járnfestingar aftan á hilluna svo betra
sé að festa hilluna upp, tekið úr fyrir þeim og
þær svo skrúfaðar á hilluna.
- Hillan pússuð vel með 120-240-320-600 pappír á
alla kanta, lím hreinsað vel.
- Borið á hilluna lútur og síðan rennt yfir hana
með olíu.
Yfirborðsmeðferð:
Lútur og antique olía.
Rugguhestur
Efni:
Beyki, leðurreimar í tagl og fax, leður í beysli.
Lýsing:
- Snið búið til úr kartoni.
- Efni fundið og heflað niður.
- Snið sett á efnið, merkt eftir og sagað niður í
bandsög.
- Hlutarnir pússaðir vel til með 60-80-120 pappír horn
rúnuð vel.
- Hausinn mótaður til, skorið út með v-járni
augu, fax, nef oþh.
- Dílað saman.
- Bogi límdur saman við fætur.
- Fætur og millistykki, uppi og niðri límd saman.
- Eyru búinn til úr leðri, hnoðuð saman og límd
á hausinn.
- Borað fyrir faxi, það límt niður.
- Haus og stoppari límt á bakið.
- Pússað vel yfir allt með 120-240-320 pappír með
juðara.
- Lakkað.
Yfirborðsmeðferð:
Lakk.
Listin alsráðandi
Fyrstu skrefin
Efni:
Hnota, skór, ál, MDF.
Lýsing:
- Sagaður niður stallur fyrir verkið.
- Rammi útbúinn úr áli sagaður niður,
pússaður, barinn til og beygður fyrir myndina.
- Útbúið bak fyrir ramman.
- Útbúnir stallar fyrir skóna.
- Stallar festir á skóna.
- Borað í stallinn fyrir skóm og festingar fyrir ramma.
- Stallur pússaður vel með juðara pappír 120-240-600.
- Bak á ramma og skór festir á stallinn.
- Útbúinn skjöldur með heiti listaverks og festur á
stall.
Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía
Rennd
skál
á platta.
Efni:
Álmur.
Lýsing:
- Fundið til efni og heflað til.
- Sagaður út hringur.
- Límt á krossviðarskífu.
- Platti skrúfaður á krossviðarskífuna
- Byrjað er á því að móta endann til að
vinna á slættinum sem alltaf kemur hversu vel sem skífa
og platti eru miðjuð.
- Skál mótuð að utan og síðan að innan,
notað skálajárn og skrapur.
- Þegar búið er að móta er pússað vel
með 60-80-120-240-320-400-800-1000 pappír, viðurinn er mjög
harður því erfitt að vinna á hvers kyns sprungum.
- Borin er brúnn bæs á og leyft að þorna vel.
- Borið á melanin lakk og mjúkt vax.
- Skál skorin af platta með flötu járni, pússað
undir á slípibandi/juðara ob borið á bæs,
lakk og vax.
Yfirborðsmeðferð:
Bæs, melanin lakk og vax.
Rennt box
Efni:
Reyniviður ofl.
Lýsing:
- Efni komið fyrir milli enda í rennibekknum.
- Rúnað vel hringinn til að búa til festingu fyrir patrónu.
- Efnið fest í patrónuna.
- Box formað að utan og mótað fyrir loki
- Pússað vel með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír
niður allar sprungur.
- Lok skorið af.
- Rennnt inn í boxinu og passað að lokið smelli á
en verði ekki laust.
- Pússað inn í boxinu ekki of mikið svo lok verði
ekki laust.
- Lok smellt á og pússað saman með boxi.
- Borið á lakk og vax eða rustikolía.
- Box skorið af, pússað undir því og borið
á það lakk og vax eða rustikolía.
Yfirborðsmeðferð:
Melanin lakk og vax eða rustikolía
Rennt frjálst
Partýbakki með ostahníf
og skeið
Efni:
Kirsuberjaviður og stál.
Lýsing:
- Fundið til efni og heflað til.
- Krossviðarskífu með platta á er límdur á
miðju bæði bakka og fót. Sirkill notaður til að
gera hring miðja platta notaður til að miðja hringinn. Sagað
út í bandsöginni.
- Byrjað er á því að móta endann til að
vinna á slættinum sem alltaf kemur hversu vel sem skífa
og platti eru miðjuð. Fótur er mótaður að utan
passlegur fyrir leguna, pússaður og borið á hann rustik.
Bakki er mótaður að utan og síðan að innan með
stalli fyrir litla salat- eða ídýfuskál, notað
skálajárn og skrapur.
- Þegar búið er að móta er pússað vel
með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír þar til búið
er að vinna á rispum. Borin á rustikolía.
- Lega er fest á miðju fótarins. Borað í gegnum
miðjuna á fætinum og fundinn miðjan á bakkanum
til að staðsetja legu á miðju bakkans. Borað er á
einum stað í gegnum legufestinguna og gegnum fótinn til
að geta fest legu á bakkan. Lega staðsett á bakkanum
og legan fest á hann.
- Rennt skaft á ostahníf og skeið sem fylgir með.
- Hnífurinn sjálfur og skeiðinn formuð úr rustfríu
stáli. Borað í gegnum skaftið á skeið og
hníf til að fá festingu í tréskaftið.
Borað í tréskaftið, límt og hníf/skeið
komið fyrir í skaftinu.
Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía.
Skerstokkur
Efni:
Beyki
Lýsing:
- Efni fundið og sagað niður í heppilegar lengdir,
heflað í afréttara og þykktarhefli.
- Kantar límdir saman.
- Sagaðir af endar til að hafna og botn heflaður í afréttara
til að rétta hann af.
- Gerðar skrautrandir neðan á með hjólsöginni.
Hún stillt á 45 halla
og blaðið rétt látið kíkja upp.
- Pússað vel með juðara og handpússað.
- Merkt fyrir raufum með vinkli 45° og 90° sitthvorum megin. Merkt að
framan og aftan.
- Sagað með handsög og gáð vel að því
að strikum sé fylgt að framan og aftan.
- Stokkurinn pússaður vel með 120-240-320-600 pappír
á alla kanta, lím hreinsað vel.
- Borið nokkrum sinnum yfir rustik olía og eftir síðustu
umferð pússað yfir með 1200 pappír.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía
Eldhúslína
Efni:
Fura
Lýsing:
- Efni fundið og sagað niður í heppilegar lengdir,
heflað í afréttara og þykktarhefli. Í sumum
tilfellum þurfti að líma saman því réttar
breiddir voru ekki til.
- Munstur teiknað inn á gafla og sagaðir í tifsöginni.
- Hillurnar efstu hafðar aðeins fram yfir dýpt og breitt og
þær fræstar að framan og á hliðum.
- Punthandklæðahengi er dílað í hilluna, stöng
sett á, hankar settir á neðri spítu, hnappar renndir
og settir á enda stangarinnar.
- Á diskarekka er fræst fyrir diskana á hillunum tveimur.
Hillan díluð saman, stangir sagaðar í réttar
lengdir og hnappar renndir og settir á endana. Hankar festir á
neðstu þverspítuna fyrir könnur.
- Eldhúsþurrkuskápur: Útvúinn er skápur,
hurð með lömum framan á inn í skápnum eru
geymdar rúllurnar þrjár þegar keyptur er fjögurra
rúllu heimilispakki. Dílað saman og límt. Stöng
útbúinn fyrir eldhúsrúlluna sem er í notkun
og hnappar renndir og settir á endana.
- Pússað vel yfir allt saman með 120-240-3200 pappír.
- Borið á antik bæs og síðar rustik olía.
Eftir síðustu umferð af rustik olíu er pússað
yfir með 1200 pappír.
Yfirborðsmeðferð:
Antik bæs og rustik olía
Renndur bakki
Efni:
Hnota og hlynur
Lýsing:
- Fundið til efni og heflað til.
- Krossviðarskífu með platta á er límdur á
miðju bæði bakka og fótar. Sirkill notaður til að
miðja hringinn. Sagað út í bandsöginni.
- Byrjað er á því að móta endann til að
vinna á slættinum sem alltaf kemur hveru vel sem skífa
og platti eru miðjuð. Fótur er mótaður að utan
passlegur fyrir leguna, pússaður og borið á hann rustik
olía. Bakki er mótaður að utan og síðan að
innan með stalli fyrir litla salat- eða ídýfuskál,
notað skálajárn og skrapur.
- Þegar búið er að móta er pússað vel
með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír þar til búið
er að vinna á rispum. Borin á rustikolía.
- Lega er fest á miðju fótarins. Borað í gegnum
miðjuna á fætinum og fundinn miðjan á bakkanum
til að staðsetja legu á miðju bakkans. Borað er á
einum stað í gegnum legufestinguna og gegnum fótinn til
að geta fest legu á bakkan. Lega staðsett á bakkanum
og legan fest á hann.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía
Rennt box með holu loki
Efni:
Birki
Lýsing:
- Efni komið fyirr milli enda í rennibekknum.
- Rúnað vel hringinn til að búa til festingu fyrir patrónu
beggja megin.
- Efnið fest í patrónuna.
- Box formað að utan og mótað fyrir loki.
- Pússað vel með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír
niður allar sprungur.
- Box skorið af.
- Rennt inn í lokið og pússað, passað að brún
sé frekar breið því eftir á að pússa
boxið við lokið.
- Rennt inn í boxið og pússsað, passað að lokið
smelli á en verði ekki laust.
- Lok smellt á og pússað saman með boxi.
- Borið á rustikolía.
- Box skorið af, sett aftur í patrónuna hinum megin frá
límband sett yfir kantinn svo ekki myndist sár af patrónunni,
pússað undir því og borin á rustikolía.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía
Lágmynd
Efni:
Birki og platti undir úr MDF
Lýsing:
- Birki spíta passleg fyrir mynd af erninum er fundinn. Hún
hefluð og svo þykktarhefluð.
- Mynd er teiknuð á fjölina og notaður til þess
kalkipappír.
- Myndin er skorin út með v-járni og u-járni.
- Þegar myndin er tilbúinn er pússað yfir hana með
400 sandpappír.
- Þá er fjölin söguð eftir myndinni þ.e.
hliðarnar jafnaðar af og gert 45
horn uppi til að fá spíssinn.
- MDF plata er söguð út passleg fyrir myndina, kantarnir fræstir
og hún síðan bæsuð brún.
- Þegar bæsin er þornaður er pússað létt
yfir plötuna og síðan er myndin límd á hana.
- Aftan á er borað gat, ekki samt í gegn sem nota á
til að festa myndina upp á vegg.
- Borin er á rustik olía bæði á myndina sjálfa
og einnig bakgrunninn. Eftir síðustu umferð er pússað
yfir myndina og bakgrunninn með 1000 sandpappír.
Yfirborðsmeðferð:
Brúnn spritbæs og rustik olía
Rennt úr blautu
Bikar.
Efni:
Birki.
Lýsing:
- Efni komið fyirr milli enda í rennibekknum.
- Rúnað vel hringinn og búinn til festing fyrir patrónu
.
- Efnið fest í patrónuna.
- Skál formuð að utan og innan.
- Pússað vel með 60-80-120-240-320 pappír niður
allar sprungur.
- Skálin sett inn í örbylgjuofn á affrystingu í
5-10 mín í senn til að þurka hana. 10-15 sinnum og
hún látin kólna vel út á borði á
milli.
- Þegar hún er orðin vel þurr er hún sett í
bekkinn aftur og pússuð betur með 240-320-400-600 pappír.
- Borin á rustikolía í bekknum nokkrum sinnum og þerrað
vel á milli.
- Stallurinn fyrir patrónuna er fjarlægður af og pússað
vel með juðara. Að endingu er sjálflímandi korkur
settur undir af því mér finnst það fallegra
og koma betur úr og einnig vegna þess að skálin rispar
þá síður þau borð sem hún kemur til
með að vera á vegna barkarins sem er neðst á henni.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía
Box með holu loki
Efni:
Reyniviður
Lýsing:
- Efni komið fyirr milli enda í rennibekknum.
- Rúnað vel hringinn til að búa til festingu fyrir patrónu
beggja megin.
- Efnið fest í patrónuna.
- Box formað að utan og mótað fyrir loki.
- Pússað vel með 60-80-120-240-320-400-600-1000 pappír
niður allar sprungur.
- Box skorið af.
- Rennt inn í lokið og pússað, passað að brún
sé frekar breið því eftir á að pússa
boxið við lokið.
- Rennt inn í boxið og pússsað, passað að lokið
smelli á en verði ekki laust.
- Lok smellt á og pússað saman með boxi.
- Borið á rustikolía.
- Box skorið af, sett aftur í patrónuna hinum megin frá
límband sett yfir kantinn svo ekki myndist sár af patrónunni,
pússað undir því og borin á rustikolía.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía
Viðarprufukassi
Efni:
Kirsuber
Lýsing:
- Efni fundið til og það heflað niður í
rétta þykkt ca 15 mm og sagað niður í réttar
lengdir.
- Ég tók þá ákvörðun að nota
þetta stykki sem sýnistykki fyrir samsetningar og valdi því
að setja sitthvora samsetningu á hvert horn.
- Ég byrjaði á geirneglingunni, gerði svo blöðun
á eitt horn, 45° samsetningu á eitt horn og dílaði
í gegn eitt horn.
- Þegar hornasamsetningum var lokið og hornin pössuðu vel
saman voru hornin límd vel saman og þvingað.
- Þá var botnin tekin til og hann sagaður passlegur til að
fella upp í kassan. Hann var svo límdur.
- Lok var rúnað með handhefli, kassi var svo sagaður í
sundur í hjólsöginni svo kæmi passlegur hluti á
lokið. Lok var svo límt á þann hluta þegar búið
var að rétta hlutana af í afréttaranum.
- Gerð var festing í lokið fyrir bæklinginn og síðan
voru lamir og krækja sett á kassan.
- Allt var pússað vel með 240-320-400-600 pappír og
síðan borin á rustik olía. Eftir síðustu
umferð af ruskik olíu var pússað yfir með 1000 pappír.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía
Leikfanga trúður
Efni:
MDF
Lýsing:
- Efni fundið sem passaði fyrir trúðinn og undirstöður
hans.
- Mynd af undirstöðum var teiknuð í gegn á efnið
með kalkipappír á milli.
- Undirstöður voru síðan sagaðar niður í
bandsöginni í sitthvoru lagi en voru síðan pússaðar
niður formaðar saman á brettinu.
- Undirstöðurnar voru svo límdar saman í rétta
stellingu, sett á endana krókar til að koma í veg
fyrir að trúðurinn færi út af.
- Í trúðinn sjálfan var borað gat fyrir díl
sem hann rennur á.
- Allt var svo málað með akríllitum. Á undirstöður
var notað sprengiefni fyrir málninguna.
Yfirborðsmeðferð:
Akrílmálning og sprengiefni.
Eldhúsáhöld
Efni:
hnota/hlynur í sköft og nýsilfur
Lýsing:
- Teiknaðar nokkrar útgáfur af ostahnífum
og spöðum, munstur valið , málmur ákveðin og
mynd límd á nýsilfursplötu.
- Skeið, spaði, ostahnífur og smjörhnífur sagað
út og pússað vel.
- Skeið hituð og formuð til.
- Sköft rennd í rennibekk, pússuð vel og borin á
þau rustik olía.
- Borað í gegnum málmsköftin til að fá festingu.
Borað í tréskaftið, límt og skeið, spaða,
ostahníf og smjörhníf komið fyrir í trésköftunum,
afsagi af hnotu sett með til að hylja mesta sárið.
- Borin á rustik olía á endana þegar búið
er að pússa af rispur og mest af saginu.
Yfirborðsmeðferð:
Pólering á málmi og rustik olía á trésköft.
Skartgripasett
Efni: Silfur og kopar.
Lýsing:
- Mynd límd á málmin.
- Sagað út fyri nælu, hálsmen og eyrnalokka.
- Pússað vel.
- Hjörtu útbúin og kveikt á neðra stykki.
- Pússað vel og pólerað.
- Koparvír er vafin utan um til skrauts og til að mynda festingu
fyrir keðju á hálsmeni og fyrir eyrnalokkafestingar, sett
einnig á nælu til að halda stíl.
- Eyrnalokkafestingar úr ekta silfri eru setta á eyrnalokkana
og keðja úr silfri sett í hálsfestina.
- Nælufesting kveikt á næluna.
- Pólerað vel að lokum og hreinsað með fægilegi.
Yfirborðsmeðferð:
Pólering.
Hlutur
með fatningu
Hálsmen.
Efni:
Silfur og austfirskur steinn.
Lýsing:
- Byrjað er á gjörðinni utan um steininn. Hún
er söguð niður í passlega lengd og breidd fyrir steininn.
- Gjörðin er svo pússuð vel og síðan mótuð
utan um steinin og kveiktir saman endarnir. Steininn er þríhyrningur
og því ekki auðvellt að eiga við hann, mæli
frekar með kringlóttum eða sporöskjulaga steinum.
- Þegar búið er að kveikja saman endana er steinninn
aftur mátaður í og gjörin síðan kveikt á
undirlag úr silfri, þegar steinnin er farin að passa alveg
í, líklegast þarf að pússa aðeins til að
fá hann til að passa þannig að hann sé ekki alveg
þröngur í en samt ekki of rúmur.
- Þegar búið er að kveikja á undirlagið er
sagað í kringum það því ég vildi
ekki hafa neitt meðfram nema bara bút að ofan til að gera
krækju fyrir keðjuna. Það er svo pússað vel
svo engin samskeyti sjáist.
- Steinninn er svo settur í og púnsað í kringum hann
þar til hann situr fastur í fatningunni. Í mínu
tilfelli þurfti svo að pússa hornin vel til af því
steinninn var þríhyrningslaga.
- Að síðustu er fatningin póleruð vel þegar
búið er að líma límband ofan á steininn
til að verja hann.
Yfirborðsmeðferð:
Pólering.
Skúlptúr úr málmi og öðrum
efnum
Könguló að elta bjöllu.
Efni:
Kopar.
Lýsing:
- Skál er búinn til sem búkur á köngulóna,
hringur teiknaður á blað og sett yfir á koparplötu.
Sagað út og pússað til, hitað og formað í
skál í skálarmóti og síðan á
steðja.
- Fæturnir eru gerðir úr þunnri koparplötu til
að gera þá dúandi og sett á endan á
þeim hringir sem eru aðeins formaðir svo hægt væri
að nota fyrir sprittkerti, ekki samt hugsað sem kertastjaki heldur
eru kertin hluti af skúlptúrnum.
- Fætur eru kveiktir neðan á skálina og síðan
er koparrör kveikt þar neðan á til að festa á
steininn.
- Bjallan er gerð úr hring líka sem er formaður í
skál, hausinn er kveiktur síðan á og einnig sett
koparrör til að festa á steininn.
- Á kóngulóna og bjölluna er sett brennisteinslifur
sem er póleruð og síðan hituð til að fá
þessa séstöku áferð sem er á .
- Að síðustu er settur sjálflímandi korkur undir
steininn til að verja það sem hann er lagðir á.
Yfirborðsmeðferð:
Brennisteinslifur, pólering og síðan eldborið.
Sýruæting
Litli ljóti andarunginn
Efni:
kopar.
Lýsing:
- Mynd er fundinn og síðan koparplata passleg fyrir myndina.
- Koparplatan pússuð vel og síðan brætt á
hana kertavax blandað parafinolíu ekki of þykkt lag.
- Þegar vaxið er orðið þurrt og platan köld er
myndin sett yfir og mótað fyrir henni í gegn um pappírinn.
- Pappírinn er tekin af og myndin skýrð, þ.e. strikin
gerð breiðari og notað til þess kúlupenni eða
breiður messing vír.
- Leir er settur utan um myndina og síðan sett sýra yfir
hana í vaskinum og látin krauma á í dálítinn
tíma. Tíminn fer eftir því hversu þynnt sýran
er.
- Sýran er svo skoluð af og einnig vaxið.
- Myndin póleruð og síðan borið á hana brennisteinslifur
og póleruð aftur svo myndast yrjur í hana.
- Undir myndina er settur kubbur úr MDF örlítið minni
en myndin sjálf og síðan sett á ljósan viðarbút
stærri en myndin sem búið er að pússa til og bera
á rustik.
Yfirborðsmeðferð:
Pólering og rustik á viðinn.
Storkurinn með kertastjaka
Efni:
Nýsilfur, messing og kopar.
Lýsing:
- Mynd af storki límd á málminn, fuglinn sjálfur
á nýsilfur, goggurinn á kopar og pokinn hans á
messing.
- Allir kantar eru pússaðir vel með þjöl og sandpappír.
Ofan á er pússað vel með 600 sandpappír.
- Hlutarnir eru svo kveiktir saman með silfurslaglóði. Fuglinn
er svo pússaður vel og það sem fór útfyrir
af silfurslaglóðinu er fjarlægt með þjöl og
síðan sandpappír.
- Aftan á fuglin er kveiktur teinn til að geta fest hann á
steininn.
- Útbúinn er stæði fyrir sprittkeri úr koparröri
sem kveikt er á koparplötu. Á kertastæðið
er einnig kveiktur á teinn til að festa niður í steininn.
Það er svo pússað vel og pólerað og borið
á það brennisteinslifur til að dekkja því
það á að vera í bakgrunni og falla við steinin.
- Á steininn eru svo boruð göt, eitt ofan á og eitt
á hlið. Þegar búið er að pólera hlutina
vel og þeir tilbúnir eru þeir límdir með epoxy
leirlími í götin.
- Undir steininn er svo settur korkur sjálflímandi til að
verja borðið sem steinnin er lagður á.
Yfirborðsmeðferð:
Pólering.
Gamalt verkfæri
Rissmát.
Efni:
Tekk og hlynur.
Lýsing:
- Efni fundið og sagað niður í stöng og stykki.
- Stykki fyrst útbúin svo hægt sé að móta
stöngina eftir því.
- Sagað gat fyrir stöng á miðju rissmáti.
- Stöng pússuð þannig að hún falli í
gatið, gat pússað líka vel.
- Gert er gat fyrir vængjaskrúfu til að festa stöng
þegar verið er að rissa.
- Borað er fyrir nagla í stöngina og naglin svo negldur í.
- Pússað vel að utan og borin á rustikolía í
nokkur skipti.
- Eftir síðustu umferð af rustik olíu er pússað
yfir með 1000 pappír.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía.
Útskorin gestabók
Efni:
Hlynur og hnota.
Lýsing:
- Efni er sagað í bókakápuna, það
heflað til í passlega þykkt.
- Mynd er fundin og sett yfir á bókarkápuna með kalkipappír.
- Myndin er skorin út og pússað yfir hana.
- Lamirnar eru gerðar úr hnotu, formaðar til eins og hentar
myndinni á bókinni. Einnig er gerð hluta af löm hægra
megin fyrir pennan því hann á það til að
vera alltaf að tínast.
- Lamirnar límdar á kápuna og á bakstykkið
er svo settur listi og hinn hlutinn af lömunum settar á það.
- Borað er fyrir skrautdílum tveimur í hvert lamastykki
og þeir límdir á sinn stað.
- Borað er fyrir blöðum á neðra stykkið og gerð
rauf á milli svo bókin fljóti ekki á leðurreiminni
sem notuð er til að festa blöðin í.
- Bókin er sett saman með dílum í gegnum lamastykkin
og hún síðan pússuð vel og borið á
hana rustik olía nokkrum sinnum.
- Eftir síðustu umferð er pússað yfir með 1000
pappír.
Yfirborðsmeðferð:
Rustik olía.
Askur
Efni:
Birki.
Lýsing:
- Byrjað er að saga út fyrir bolnum á asknum.
Átta kubbar eru sagaðir út samkvæmt myndinni hér
að neðan.
- Þeir eru svo límdir saman og þvingaðir saman með
bandþvingu.
- Krossviðsplatti er límdur öðrum megin svo svo hægt
sé að skrúfa bolin á skífu í rennibekkin.
- Botninn er einnig settur á platta og skífu og renndur tilbúinn
til að setja á bolinn.
- Gjarðir eru sagaðar þunnar úr sama við ca 1-2 mm.
- Bolurinn er mótaður til í rennibekknum og gerðar raufar
passlegar fyrir gjarðirnar. Inn í endan er gerð rauf fyrir
botnin og hann svo renndur samhliða passlegur í raufina.
- Gjarðirnar eru mótaðar utan um bolinn, bleyttar fyrst í
heitu vatni til að koma í veg fyrir að þær springi.
Látnar bíða í sólarhring og síðan
límdar á sína staði. Botnin er límdur upp
í og krossviðarplattin klofinn frá.
- Þá er komið að lokinu. Það er mótað
gróflega fyrir askinn og síðan rennt innan úr því
í bekknum.
- Það er svo mótað utan á með handhefli, þjölum
og sandpappír. Myndin er sett á það og skorin út.
- Handfangið er sagað útgróflega, í askinn er
söguð rauf fyrir það þar sem gjarðirnar mætast
og handfangið mótað inn í raufina.
- Handfangið er límt á sinn stað og rauf gerð í lokið fyrir handfangið og því komið á sinn stað, dílað í gegn um lok og handfang til að festa lokið. Askurinn pússaður vel og borin á hann vax til að halda ljósa litnum.
- Krossviðarplattinn af botninum er klofin frá og botninn svo pússaður vel og borið á hann vax.
Yfirborðsmeðferð: Vax.
Nýi ostaskerinn.
Efni: Hlynur og nýsilfur.
Lýsing:
- Efni fundið og sagað niður í heppilegar lengdir fyrir hinn nýja ostaskera, heflað í afréttara og í þykktarhefli.
- Útbúið gormasystem til að þrýsta á ostinn.
- Ostaskeri útbúinn úr nýsilfri og skaft á hann, sem er hnoðað á hnífinn.
- Ostahnífur er pússaður vel og póleraður.
- Skaft á ostahníf er rustikolíuborið.
- Útbúið er system til að styðja á móti gormasysteminu til að osturinn fjúki ekki út í buskann og sem hægt er að nota til að stilla þykkt ostasneiða.
- Pússað allt vel og rustikoliuborið.
- Pússað með 1000 pappír eftir að síðasta rustikolíuumferðin er þornuð vel.
Yfirborðsmeðferð: Rustik olía og pólering.
Nýja rúðuskafan
Efni: plexi gler og plast.
Lýsing:
- Um er að ræða handlangara fyrir þá sem vilja skafa af framrúðunni inni í bílnum.
- Útbúinn er stöng úr plexi gleri sem beygð er til svo hægt sé að nota hana inni í bílnum til að skafa framrúðuna.
- Á endan á henni er fest rúðuskafa.
- Nú er hægt að sitja í hlýjunni í bílnum og skafa út um gluggan, án þess að vera sjálfur út.
- Stöngin er beygð til með því að nota gasloga.
- Endar eru skafðir með sikling, pússaðir með sandpappír og eldbornir.
Yfirborðsmeðferð:
Eldborið.
Lokastykki langspil
Efni: Hnota og birki
Lýsing:
- Efnið fundið til og sagað.
- Efnið í bolinn er heflað niður í 1,5 mm.
- Gert er mót úr spónablötum sem límdar eru saman og sagað svo eftir teikningu boginn á bolnum.
- Efnið í bogan á bolnum er sett í bleyti yfir nótt, svo er látið renna á það heitt vatn í 20 mín áður en það er sett í mótið. Látið þorna í mótinu í 2-3 daga.
- Listar eru gerðir ca. 1X1 cm og sagað í þá raufir svo auðveldara sé að beygja þá..
- Listarnir eru límdir á hliðaefnið bæði uppi og niðri.
- Stívur eru útbúnar sem festar eru á endum og við bogann, festir saman hliðarnar.
- Botn og lok er sagað út eftir hliðunum, hljóðgat er búið til á lokið, sagað út.
- Botn og lok er límt á hliðarnar.
- Kantar eru fræstir.
- Snigill að framan og botn að aftan er formað til.
- Renndar eru þrjár skrúfur sem passa í göt á sniglinum sem búið er að gera kónísk.
- Gripbretti er sagað og pússað, útbúinn er söðull að framan örlítið hærra en gripbrettið og eins er útbúið að aftan á botnstykkið.
- Bönd eru sett á söðlastykkið sem strengirnir liggja á.
- Gripbrettið er búið til og er notuð ákveðin reikningsformúla fyrir það. Byrjað er á því að finna út lengdina á milli bandanna að framan og aftan. Í þá lengd er deilt með 17,835, þannig fæst fjarlægðin frá bandinu að framan og að fyrsta bilinu. Bil tvö er fundið með því að draga fjarlægðina að fyrsta bilinu frá heildarlengdinni, í þá tölu er svo deilt í með 17,835. Þetta er gert við hin tónbilin sem eftir eru. Gott er að nýta sér tæknina og láta Excel forrit sjá um útreikningana.
- Þegar búið er að merkja á brettið hvar böndin eiga að koma er vinkill settur á til að gera hornrétta línu, sagað er svo fyrir böndunum í sagastokk, tveggja þátta lím er sett á böndinn og þau hömruð niður í götin. Brýni er strokið yfir til að jafna böndin.
- Brettið er límt á langspilið, það er pússað vel og borið á það nokkrar umferðir rustikolía.
|
Útreikningur á gripbretti |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Upphafleg fjarlægð |
73,2 |
4,104 |
|
73,2/17,835 |
|
73,2-4,104289 |
69,0957 |
3,874 |
|
69,1/17,835 |
|
69,09571-3,874164 |
65,2215 |
3,657 |
|
65,22/17,835 |
|
o,s,frv, |
61,5646 |
3,452 |
|
o,s,frv, |
|
58,1127 |
3,258 |
|
|
|
54,8544 |
3,076 |
|
|
|
51,7787 |
2,903 |
|
|
|
48,8755 |
2,74 |
|
|
|
46,1351 |
2,587 |
|
|
|
43,5483 |
2,442 |
|
|
|
41,1066 |
2,305 |
|
|
|
38,8017 |
2,176 |
|
|
|
36,6261 |
2,054 |
|
|
|
34,5725 |
1,938 |
|
|
|
32,6341 |
1,83 |
|
|
|
30,8043 |
1,727 |
|
|
|
29,0771 |
1,63 |
|
|
|
27,4468 |
1,539 |
|
|
|
25,9078 |
1,453 |
|
|
|
24,4552 |
1,371 |
|
|
|
23,084 |
1,294 |
|
|
|
21,7897 |
1,222 |
|
|
|
20,568 |
1,153 |
|
|
|
19,4147 |
1,089 |
|
|
|
18,3262 |
1,028 |
|
|
|
17,2986 |
0,97 |
|
|
Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía
Hönnunarverkefni
Söguspilið
Efni: Maghony, fura, plast, krossviður.
Lýsing:
- Efni fundið til og heflað niður í réttar þykktir.
- Spilakassinn er úr maghony, hornin á honum er gerð samsetning í borðfræsara. Kassinn er límdur saman, settur á hann botn sem búið er að fræsa skrautrönd á og lokið er gert eins.
- Gert er gat fyrir rafmagnsbúnað sem er hluti af spilinu.
- Tengingar gerðar fyrir rafmagnsbúnaðinn og einnig eru renndir hringir sem settir eru á hliðarnar og koma þeir í stað teninga. Örin er útbúinn á hliðarnar sem hluti af teningaútbúnaði.
- Spilaborð er gert í tölvu og prentað út, það er límt á krossviðaplötu með kontakt lími og sagað í tifsög.
- Spurningablöð fyrir rafmagnskerfi eru útbúinn og gerð þannig að hægt er að breyta um spurningar eftir eðli þess námsefnis sem verið er að fara yfir.
Yfirborðsmeðferð:
Á kassa rustikolía
Nytjahlutur með listrænu ívafi
Útskorin þorratrog
Efni: Hlynur
Lýsing:
- Efnið sagað niður og heflað í réttar þykktir.
- Á hliðar eru söguð 45° horn hallandi og að neðan er heflað til að hliðarnar standi rétt.
- Gerðar eru skrautrandir í hjólsöginni ef vill.
- Hliðar eru límdar saman og málningarlímband notað til að þvinga hornin saman.
- Botninn er útbúinn og skorið út í hann munstur.
- Ramminn er svo límdur á botninn.
Yfirborðsmeðferð: Lakk
Rennt úr samlímdu
Box með loki
Efni: Maghony ljóst
Lýsing:
- Efnið fundið til, sagað og heflað.
- Efnið er límt saman og þvingað.
- Límd er krossviðarskífa á botninn og platti skrúfaður á.
- Hringur er útbúinn eins stór og hægt er á efnið og sagað af hornin.
- Skálinn er rennd og lokið skorið af, sett skífa og platti á lokið svo hægt sé að renna inn í það.
- Rennt inn í skál og lok.
- Skífa límd hinum megin á lokið svo hægt sé að ljúka toppinum á því. Lok pússað vel og borið á það rústikolía.
- Skál pússuð vel og borinn á hana rustik.
- Skífa klofinn af lokinu og borin rustikolía inn í lokið.
- Skál skorinn af stalli.
Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía.
Rennt skreytt með útskurði
Box með loki
Efni: Birkilurkur.
Lýsing:
- Lurkur er renndur á milli enda og gerður á hann stallur fyrir patrónu beggja megin.
- Formið á boxinu er mótað.
- Markað er fyrir loki og það skorið af.
- Boxið er holað að innan og það pússað.
- Lokið er sett í patrónuna, það holað að innan og pússað vel.
- Lok er skorið af stallinum.
- Á lok er skorið út munstur.
- Borið á rustikolía.
Yfirborðsmeðferð:
Rustikolía.
Renndur vasi
Hjámiðjurennsli
Efni: Reyniviðarlurkur
Lýsing:
- Lurkur settur á milli enda og gerður á hann stallur fyrir patrónu.
- Hann er formaður á milli enda og skipt um miðju þrisvar öðrum meginn, þ.e. oddurinn er látinn fyrst á miðjuna, renndur hluti af vasanum, síðan öðrum meginn við miðjuna og annar hluti renndur að síðustu er sett hinum meginn við miðjuna og þriðji hlutinn er renndur. Allt pússað vel.
- Lurkurinn er settur í patrónu og rennt innan úr honum.
- Pússað vel og borið á rustikolía.
Yfirborðsmeðferð: Rustikolía.
Annað að eigin vali
Dúkkuvagga
Efni: MDF
Lýsing:
- Efni fundið til og sagað niður eftir skapalóni.
- Hlutarnir eru dílaðir saman og límt.
- Pússað vel yfir og borið á grunnur.
- Málað með rúllu.
Yfirborðsmeðferð:
Akrýlmálning.
Hönnunarverkefni
Skartgripasett
Efni: Silfur, messing, kopar og jaspissteinn.
Lýsing:
- Hlutar eru sagaðir út og kveiktir saman, sverft með þjöl og pússað með sandpappír.
- Fatning á hálsmen er útbúinn.
- Fatningin er kveikt á hálsmenið, pússað vel og steininum komið fyrir í henni.
- Kantar púnsaðir niður.
- Menið er formað til á trékubb með hamri.
- Pússað vel og pólerað.
- Gert gat sitthvorum megin fyrir keðjur.
- Hringur er sagaður út og kveiktur saman. Hlutar á hann eru kveiktir saman og pússaðir vel.
- Þeir eru síðan kveiktir á hringinn, formað til á trékubbi.
- Pússað vel og pólerað.
Yfirborðsmeðferð: Pólering.
Hnífur úr vélsagarblaði.
Efni: vélsagarblað, messingkubbar, hreidýrahorn, leðurhulstur.
Lýsing:
- Teiknað er á vélsagarblaðið form fyrir hnífinn.
- Það er skorið með slípirokk því ekki er hægt að saga blaðið.
- Formið er pússað til á pússibandi og formað til.
- Bit er gert á hnífinn á smergeli.
- Handfang er útbúið og sagað á það endi og hjöltu úr messing ca. 1 cm þykku.
- Á enda eru boruð 2 göt og sett í þau skrúfur sem klipptir eru hausarnir af. Boruð eru göt inn í hornið og messingkubburinn er límdur á endan á horninu, pússað vel saman og pólerað.
- Í hjöltun er gerð rauf fyrir sagablaðið og þau svo kveikt á blaðið.
- Pússað vel.
- Sagablaðið er límt inn í rauf á horninu.
- Útbúið er hulstur utan um blaðið úr leðri.
Yfirborðsmeðferð: Sagablað pússað og gerð mött áferð. Horn og messingkubbar póleraðir. Hulstur litað og sett á leðurfeiti.
Tinsteypa
Steypumót búin til
Fyrst þarf að búa til steypumót. Þau eru gerð á tvennan hátt. Annars vegar er það opið mót fyrir einfaldari muni eins og skartgripi. Þetta mót er búið til þannig að notaður er trékubbur sem skorið er í mynd með sporjárni eða útskurðarjárnum sem búið er að teikna á kubbinn. Einnig er hægt að búa svona mót til með leir og gifsi. Þá er gerður hlutur úr leir sem settur er í kassa og gifs sett yfir. Þegar gifsið er orðið hart er leirinn fjarlægður og eftir stendur gifsmót af hlutnum.
Til að
búa til lokað
steypumót þarf
fyrst að búa til mót af hlutnum úr tré, leir,
mótunarvaxi eða plastleir sem er vaselín- eða olíuborinn.
Gifsblanda er svo sett í vaselín- eða olíuborinn kassa
og hlutnum þrýst ofan í til hálfs, gæta verður
þess að mynda rás frá efsta hluta hlutarins að brún
kassans svo hægt sé að hella bráðnuðu tini ofan
í mótið, einnig er gott að setja tappa ofan í neðri
hlutann sem teknir eru úr þegar síðari blandan er sett
í. Þannig verður til tappi sem gerir mótið stöðugra
þegar það er sett saman fyrir steypunina. Þegar gifsið
er orðið hart er vaselín eða olía borin á hliðina
sem snýr upp í mótinu og nýrri hræru af gifsi
bætt ofan á. Þegar gifsið er orðið alveg hart
er óhætt að taka formið í sundur.
Steypt í mótið
Ef um opið mót er að ræða er plata sett fyrir framan það og fest vel í skrúfustykki. Rás er frá hlutnum og upp í gegnum mótið þar sem bráðnuðu tini er hellt ofan í. Mótið verður að vera alveg þurrt því ef raki er innan í því getur sjóðheitt tinið skvest upp úr forminu. Tinið er brætt í deiglu við 232ēC með gasloga. Það er svo látið renna í mótið. Eftir 10-15 mínútur er mótið opnað og þá sést árangurinn. Hlutinn sem myndar rásina er sagaður af og endinn pússaður. Hægt er að lita tinaða hluti, sjá nánar í kaflanum um yfirborðsmeðferð.
Sama aðferð er notuð þegar verið er að steypa í lokað mót, nema þar þarf ekki plötu til að setja fyrir.
Á
heimasíðu
Arndísar
Síðast uppfært 20.05.2002
Efst á síðu
Ef þú hefur einhverjar spurningar sem þú villt koma til mín eða upplýsingar um ritvillur á síðunni þá smelltu endilega á myndina hér fyrir neðan og sendu mér í rafpósti
