|
Reykjavík
14. maí 2002
Kæru ættingjar!
Loksins látum
við heyra frá okkur aftur. Við höfum tekið
að okkur að halda upp á þrítugsafmæli
Þorsteins Guðmundssonar í Húsafelli
þessa helgi vegna þess að hann er búinn
að lofa að mæta svo það er annað
hvort að hrökkva eða stökkva. Vonandi stökkva
allir því það verður geggjað
stuð. Þeir sem ekki mæta verða mjög
líklega kostnir til að sjá um að skipuleggja
,,alvöru ættarmót" því
þetta er aðeins upphitun og því allt
leyfilegt!
Það hafa fáir látið heyra í
sér og staðfest mætingu sína endilega
látið okkur vita hvort þið mætið
eða ekki því við þurfum að
fara að láta taka frá fyrir okkur flöt
til að tjalda á.
Helga Hilmarsdóttir hefur tekið frá 3 smáhýsi,
2 herbergi og baðstofuloft í Gamla
bænum fyrir þá sem vilja. Ef einhver
vill leigja slíkt þá hafið endilega
samband við hana í síma 581-2028.
LÁTIÐ
VITA HVORT ÞIÐ KOMIÐ EÐA EKKI SEM ALLRA
ALLRA FYRST
Júlí
2002
Allar
líkur eru á því miðað
við hversu fáir hafa skráð sig þá
verður þetta fámennt en mjög góðmennt
mót. Eins og komið hefur fram í fréttabréfunum
okkar þá verður kosið í ættarmótsnefnd
fyrir næsta mót og verður það
væntalega formlegra heldur en þetta hjá
okkur núna þetta árið. Við erum
farin að hlakka mjög til að sjá ykkur
næstu helgi. Ekki er komin nein veðurspá
en auðvitað verður þokkalegt veður
enda höfum við Hranhildur setið á bæn
í marga mánuði.
|