Þegar
prjónað er brugðið myndast garður eins
og sést hér fyrir neðan. Prjónað
er brugðið á röngunni þegar prjónað
er fram og til baka og ætlunin er að hafa slétt
að framan.
Prjóninn
sem prjónað er af er í vinstri hendi og
prjóninn sem við notum til að prjóna
á er í hægri hendi. Taktu fyrstu lykkjuna
óprjónaða.
Næstu
lykkju stingurðu hægri prjóninum beint
inn í hana og sækir bandið.
Dragðu
bandið í gegnum lykkjuna, þá hefurðu
búið til nýja lykkju.
Dragðu
gömlu lykkjuna af vinstri prjóninum og settu
hana niður.