Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Garðaprjón

Garðaprjón, ef prjónað fram og aftur eru allar umferðir prjónaðar eins eða slétt. Hægt er að prjóna garðaprjón í hring en það er yfirleitt ekki gert. Ef það er hins vegar gert þarf að prjóna fyrstu umferð slétt og næstu umferð brugðið, þannig er prjónað til skiptis.

Prjónninn með lykkjunum sem búið er að fitja upp er settur í vinstri höndina og hinn prjóninn er settur í hægri höndina, stingið í gegnum fyrstu lykkjuna.
Farið inn í næstu lykkju og sækjið bandið...
... komið með það sömu leið til baka
Takið lykkjuna sem búið er að draga bandið í gegnum af vinstri prjóninum, þá eru komnar tvær lykkjur á hægri prjóninn.
Haldið áfram út prjóninn, þegar þú hefur klárað út prjóninn þá ertu búinn að prjóna eina umferð. Tvær umferðir gera einn garð.