Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Tvíbandaprjón

Tvíbandaprjón nefnist það þegar prjónað er með tveimur litum eða fleiri í sömu umferð. Þegar tvíbandaprjón er prjónað í hring verður að hafa bæði böndin samtímis á vísifingri vinstri handar. Liturinn sem er mest áberandi í umferðinni er hafður vinstra megin á fingrinum og svo koll af kolli, nauðsynlegt er að halda eins á böndunum allt prjónið nema maður vilji breyta áferðinni. Þegar tvíbandaprjón er prjónað fram og til baka eru böndin höfð eins og þegar prjónað er í hring þegar slétta umferðin er prjónuð, þegar prjónað er brugnu umferðina er þessu víxlað við, þ.e. ríkjandi liturinn verður hægra megin og víkjandi vinstra megin. Þegar brugna lykkjan er prjónuð er farið með prjóninn aftur fyrir bæði/öll böndin og síðan inn í lykkjuna og hún prjónuð. Prjóna á jaðarlykkjuna með báðum/öllum litum. Hægt er að prjóna tvíbanda prjón alltaf frá réttunni þó svo prjónað er fram og til baka og er það kallað myndprjón.

Bæði böndin eru á vísifingri vinstri handar en ríkjandi bandið er einnig yfir á löngutöng eins og sést á myndinni.
Réttan.
Rangan.