Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Blandað garn

Blandað garn er garn sem spunnið er úr blöndu af náttúruefnum eins og t.d. bómull eða ull og gerviefnum eins og t.d. akríl. Þetta er gert til að ná fram kostum beggja þátta, styrkleika gerfiefnisins og hlýju og mýkt ullar og bómullar. þegar garn er valið er nauðsynlegt að þekkja eiginleika þeirra tegunda sem hægt er að velja um. Utan um garnhespur er miði með lýsingum á garninu, oftar en ekki er getið prjónafestu, prjónastærð og hvernig þvo má flík sem prjónað er úr því. Einnig er lita og framleiðslunúmer. Gæta verður þess að í heila flík verður að velja sama framleiðslunúmer á öllum dokkum því litamismunur milli framleiðslu getur verið veruleg. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um nokkrar náttúrleg efni sem notað hefur verið í garn og gjarnan blandað saman við annað, fengið af vefnum handavinna.is

Ananas

Ananasplantan er ræktuð í Austurlöndum fjær og á Filippseyjum.
Laufin af ananasplöntunni eru rifin í mjög fína þræði og ofin af innfæddum í föt, munnþurrkur og dúka og síðan litaðar í skærum litum.Vegna stífleika þráðanna liggja fötin ekki að líkamanum og eru því góð í hitum.

Jute
Juteplantan vex í mýrlendi á Indlandi. Þar þurfa innfæddir að standa í skítugu vatninu allt að mittishæð og berja börkinn frá þráðunum. Þetta eru ódýrir þræðir sem eru notaðir fyrir bakpoka og undirlag fyrir gólfteppi og linoleumdúka.

Hampur
Hampur er ræktaður á Fillipseyjum og í Bandaríkjunum. Það voru Kínverjar sem fyrstir fundu út mikilvægi hans. Þræðirnir eru notaðir í föt, fræin eru notuð í mat, safinn, blómin og laufin eru notuð fyrir lyf og stylkirnir eru notaðir sem orkugjafi. Þar sem hampur er sterkara efni en jute er það notað í kaðla, teppi, segl, reimar, pökkunarefni og jafnvel föt.

Coir
Sterkir þræðir af kókoshnetunum kallast coir. Þetta efni er mest notað í brúnu dyramotturnar.

Kapok
Kapok eru mjúkir og silkikenndir þræðir sem koma af fræum Ceiba trésins. Þetta efni er notað í vatt fyrir púða, dýnur og stundum í föt. Ræktað í V- Afriku og öðrum hitabeltislöndum