Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Heklunál

Heklunál er nál með krók á endanum. Hana notum við t.d. þegar lykkjur detta niður af prjónunum hjá okkur og er hún þá hekluð upp. Heklunál er einnig notuð við ýmsan frágang t.d. þegar verið er að ganga frá hálsmáli, hekla kanta á dúka og teppi o.s.frv. Heklunálar eru til í mismunandi grófleika og er númer hennar greypt í nálina.