Hringprjónar
Hringprjónar
eru tveir prjónar úr málmi eða tré
sem tengdir eru saman með plastbandi. Þeir eru seldir
mismunandi langir frá 40 sm og upp í 120 sm. Oftast
eru notaðir 40 sm hringprjónar til að prjóna
ermar og 70-80 sm til að prjóna boli á peysum.
Lengstu prjónarnir eru yfirleitt notaðir þegar
verið er að prjóna dúka, teppi eða annað
slíkt. Oftast eru hringprjónar notaðir til að
prjóna í hring en einnig er hægt að nota
þá þegar verið er að prjóna
fram og til baka, sérstaklega þegar margar lykkjur
eru á prjóninum, þá jafnast þyngdin
á prjóninu betur en ef bandprjónar eru notaðir.
