Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Sokkaprjónar

Sokkaprjóna kaupum við fimm saman í pakka, þeir eru stuttir með oddum báðum megin ýmist úr málmi eða tré. Þetta eru oftast fyrstu prjónarnir sem við eignumst þegar við byrjum á prjónaskap. Hægt er að nota þá þegar verið er að prjóna litla hluti og eru þá notaðir tveir prjónar í einu og prjónað fram og til baka. Oftar eru þeir notaðir þegar prjónað er í hring t.d. ermar, sokkar, vettlingar og aðrir hlutir þar sem lykkjurnar komast ekki á hringprjón.