Ullargarn
Ullin
er mjög hlýleg og hentar því vel í
föt sem eiga að halda á okkur hita, gallinn við
ullina er að það eru ekki allar tegundir sem þvo
má í þvottavél. Hér fyrir neðan
eru upplýsingar um ullina sem eru teknar beint upp af vefnum
Handavinna.is
Uppruni
ullar
Ull er dýrahár sem unnin eru af kindum en önnur
dýrahár bera nafn dýranna sem þau koma
af.
Ull hefur frá náttúrunnar hendi afar góða
einangrunareiginleika. Á hverju ári er ullin rúin
af kindunum og þvegin og þurrkuð. Ullin er síðan
kembd og síðan spunnin.
Gæði ullarinnar er afar misjöfn og eru þræðirnir
mis grófir og langir eftir tegund og löndum. Ull má
flokka í þrjá meginflokka , grófull,
milliull og fínull. Lengd þráðanna er
frá 40-150mm og fínleiki frá 15-30mm.
Styrkur
Ullin er tiltölulega teygjanleg og þolir vel endurteknar
beygingu. Ullarvörur sem eru þéttar og þæfðar
eru nokkuð slitsterkar þó að ullin sem slík
sé ekki sérlega slitsterk og slitni fljótt
ef efnið er lauslega uppbyggt.
Sólarljós
Samanborið við önnur efni er ullin frekar viðkvæm
fyrir sól og brotnar tiltölulega fljótt niður
í sólarljósi.
Hlaup
og þæfing
Ef ullarvörur eru rétt meðhöndlaðar hlaupa
þær ekki en við vélþvott og hátt
ph gildi þæfist ullin og getur varan orðið
ónýt. Þæfingin verður þannig
að "hreystur" á ullarþráðunum
rísa og þræðirnar ná að festa
sig saman.
Þæfingareiginleiki ullar er nýttur í
iðnaði við lokameðhöndlun á ýmsum
vörum.
Krumpun
Ullin krumpast minnst af náttúlegum efnum en það
stafar af eiginleikum þráðanna til þess
að rétta sig við. Eingöngu einstaka gerfiefni
er betri en ull með tilliti til krumpunar.
Raka
og vökvadrægni
Ullin hefur góða rakainnihaldseiginleika og getur innihaldið
vökva allt að 35%. Uppsog á vökva er frekar
hægt og er ullin því vökvafráhrindandi.
Einangrunargildi
Ullin hefur einstaklega góða einangunareiginleika.
Það stafar af því að þræðirnir
eru liðaðir og loftrými er því mikið
í þeim.
Þvottur,
hreinsum og strauun
Best er að handþvo ullina með þvottaefni með
lágu ph gildi. Ýmsar meðhöndlaðar ullarvörur
þola þó þvott í vél á
ullarstillingu, þó ekki við hærra hitastig
en 40C. Ullin heldur best náttúruefna pressun og
strauun. Best er strauun við 175 C (**) og nota gufustraujárn
eða pressustykki. Ull þolir venjuleg hreinsiefni.
Helstu
eiginleikar ullar eru:
· Rakadrægni
· Einagrunargildi og liðun þráða
· Þæfanleiki
· Teygjalegt og beygjanlegt
· Krumpast lítið,uppréttun þráða
· Pressun helst vel
· Slitstyrkur
· Hrindir frá sér óhreinindum
Helstu
gallar ullar eru:
· Þvottur og umhirða
· Þolir ekki þurrkara
· Togstyrkur
· Þolir illa sólarljós
· Vinsælt af mölflugum