|
Húsgangsfit
Húsgangsfit
er stundum nefnd teygjufit, hún er einföld og þjál.
Gott er að nota hana þegar fitjað er upp með fínu
garni. Lengd garnendans er áætluð etir gildleika
prjónanna sem notaðir eru. Úr metra af garni fæst
ca.
|
Prjónastærð
|
Lykkjufjöldi
|
|
3
|
70
|
|
4
|
66
|
|
5
|
61
|
|
6
|
56
|
|
7
|
51
|
Gott
er að bæta við ca. 15 sm löngum enda til að
nota við frágang. Smá dæmi, í uppskrift
stendur að fitja eigi upp 166 lykkjur á prjóna
nr. 4 (166:66=2,5) það segir okkur að 2,5 m þarf
að garni í uppfitina og bæta við 15 sm í
frágangin sem sagt 2,65 sm.
|
Setjið
bandið yfir þumalfingur og vísifingur og
kreppið hina þrjá fingurna utan um böndin.
|
|
|
Takið
prjóninn í hina höndina og dragið bandið
fram milli þumals og vísifingurs. Munið að
halda stíft í það með hinum fingrunum.
|
|
|
Farið
svo með prjóninn undir bandið á þumalfingri.
|
|
|
Sækið
bandið sem er á vísifingri og komið
með það sömu leið til baka út
hjá þumalfingri.
|
|
|
Þá
koma tvær lykkur í einu, en það er
bara í fyrsta sinn.
|
|
|
Endurtakið
hér fyrir ofan og þá bætast við
lykkjur ein og ein í einu, fitjið upp eins margar
lykkjur og þarf.
|
|
|