Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Silfurfit

Silfurfit er stundum nefnd tvöföld fit og er gott að nota hana þar sem þarf sértaklega sterka fit, t.d. á peysur, sokka og vetlinga. Taka þarf frá langan enda sem fer í fitina. Lengd garnendans er áætluð etir gildleika prjónanna sem notaðir eru. Úr metra af garni fæst ca.

Prjónastærð
Lykkjufjöldi
3
55
4
50
5
42
6
38
7
33

Gott er að bæta við ca. 15 sm löngum enda til að nota við frágang. Smá dæmi, í uppskrift stendur að fitja eigi upp 150 lykkjur á prjóna nr. 4 (150:50=3) það segir okkur að 3 m þarf að garni í uppfitina og bæta við 15 sm í frágangin sem sagt 3,15 sm.

Byrja á því að búa til lykkju á prjóninn, síðan er vísifingur og þumalfingur vísað niður með bandið sitthvorum megin, þá er fingrunum vísað upp, þá fæst rétt hald eins og sýnt er á myndinni. Farið er með prjóninn undir bæði böndin á þumalfingri og ofan í lykkjuna..
..síðan sækir prjónninn bandið á vísifingri og fer til baka með það upp í gegnum lykkjuna á vísifingri.