Efni og áhöld
Prjónafesta
Að fitja upp
Prjónaaðferðir
Útaukning
Úrtökur
Affellingar
Frágangur
Léttar uppskriftir
Þyngri uppskriftir
Prjónaslóðir

 

© Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 19.08.2002

 

Lykkja saman

Þegar lykkjað er saman er ein umferð saumuð til viðbótar prjóninu og passa verður sig á því að lykkjuninn verði jöfn og prjónaskapurinn, ekki gera of lausar lykkjur og ekki of fastar.

Nálinni er stungið upp í fyrstu lykkjuna, síðan stungið niður í fyrstu lykkju á móti. Nálinni er stungið aftur ofan í fyrstu lykkju og upp í næstu lykkju, þannig er lykkjað saman lykkju eftir lykkju þar til allar lykkjur eru búnar.

Lykkjað saman við affellingu: Þegar verið er að prjóna peysur er stundum fellt af öxlum á bakstykki en ekki af framstykki, þá er þessi aðferð notuð til að lykkja saman. Þetta er gert svona til að veita stuðning sérstaklega þegar prjónað er úr grófu og eða þungu garni.

 

Lykkjað saman frá röngu.
Jaðrar saumaðir saman: Þegar flík er prjónuð í stykkjum þannig að sauma þarf stykkin saman í lokin er notuð þessi aðferð.