Bangsagalli
allt í einum

Þetta
er löng uppskrift en hún er ekki mjög flókin,
hún er rakin alveg frá upphafi til enda. Þetta
er uppskrift sem fengin er úr ensku Rowan hefti sem ég
þýddi.
Stærðir:
Fyrir 3 6 9 mánaða
brjóstmál 53 56 59 cm
Heildar lengd 44 48 52 cm
skálmasídd 9 11 13 cm
ermalengd 14 16 18 cm
Efni:
Aðallitur 7 8 9 Dokkur
Aukalitur 1 1 1 Dokka
Tölur 11 11 11 Stk.

Garn:
Rowan Designer DK 115 m á 50 gr. dokku eða sambærilegt.
Hægt er að nota td. Smart eða Dalegarn Heilo en bæta
þarf þá við einni dokku í hverri stærð
í aðallit.
Prjónafesta:
22 l og 44 umf garðaprjónn = 10 sm á prjóna
nr. 4
Prjónar:
Nr 3,5 og 4 fyrir Rowan, nr. 3 og 3,5 fyrir hinar garðtegundirnar.
Vinstri
sokkur:
Fitja upp 32/34/36 lykkjur á prjóna nr. 3.5
1. umf. Slétt
2. umf. [13/14/15 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju,
1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
X2
3. umf. Slétt.
4. umf. [13/14/15 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju,
3 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
X2
5. umf. Slétt.
6. umf. [13/14/15 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju,
5 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
X2
7. umf. Slétt.
8. umf. [13/14/15 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju,
7 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
X2
9. umf. Slétt.
10. umf. [13/14/15 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju,
9 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
X2 = 52/54/56 lykkjur á prjóninum.
11. - 15. umf. Sléttar.
16. umf. 13/14/15 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 7 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
17. - 19. umf, slétt.
20. umf. 13/14/15 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 5 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
21. - 23. umf. Sléttar.
24. umf. 13/14/15 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
25. umf. Slétt.
26. umf. 12/13/14 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
27. umf. Slétt.
28. umf. 11/12/13 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
29. umf. Slétt.
30. umf. 10/11/12 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
31. umf. Slétt.
32. umf. 9/10/11 lykkjur sléttar. 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
33. umf. Slétt.
34. umf. 8/9/10 lykkjur sléttar. 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf. =36/38/40 lykkjur,
1 umf. Slétt.
Vinstri
skálm:
Skipt yfir á prjóna nr. 3, næsta umferð
á röngu *[1 sl. 1 br.] X2, [1 sl, 1 br.] í næstu
lykkju, endurtekið frá stjörnu þangað
til 1/3/5 lykkjur eru eftir, [1 sl, 1 br.] 0/1/2 sinnum, 1 slétt.
=43/45/47 lykkjur.
1. stroff umf. 1 br. [1 sl. 1 br.] út umferðina.
2. stroff umf. 1 sl. [1 br. 1 sl.] út umferðina.
Gerið þrjár stroff umferðir í viðbót.
Næsta umferð, prjóna stroff 3/3/2 lykkjur, [auka
1 lykkju, stroff 1 lykkja, auka 1 lykkju, stroff 2 lykkjur] 13/13/14
sinnum, [auka 1 lykkju, stroff 2 lykkjur] 0/1/1 sinni, stroff 1
lykkja. =69/72/76 lykkjur.
Skipt yfir á prjóna nr. 3,5 prjónað garðaprjón
þar til öll skálminn mælist 9/11/13 cm frá
byrjun á stroffinu og enda síðustu umferð
á röngu.
Skrefið:
Fellið af 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum,
takið úr 1 lykkju í byrjun næstu 4 umferða,
setjið á nælu lykkjurnar 59/62/66 sem eftir eru.
Hægri
sokkur:
Fitja upp 32/34/36 lykkjur á prjóna nr. 3.5
1. umf. Slétt
2. umf. [2 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 1 lykkja
slétt, auka í 1 lykkju, 13/14/15 lykkjur sléttar]
X2
3. umf. Slétt.
4. umf. [2 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 3 lykkjur
sléttar, auka í 1 lykkju, ,13/14/15 lykkjur sléttar]
X2
5. umf. Slétt.
6. umf. [2 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 5 lykkjur
sléttar, auka í 1 lykkju, 13/14/15 lykkjur sléttar]
X2
7. umf. Slétt.
8. umf. [2 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 7 lykkjur
sléttar, auka í 1 lykkju, 13/14/15 lykkjur sléttar]
X2
9. umf. Slétt.
10. umf. [2 lykkjur sléttar, auka í 1 lykkju, 9 lykkjur
sléttar, auka í 1 lykkju, 13/14/15 lykkjur sléttar]
X2 = 52/54/56 lykkjur á prjóninum.
11. - 15. umf. Sléttar.
16. umf. 28/29/30 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 7 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
17. - 19. umf. Sléttar.
16. umf. 28/29/30 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan íykkjuna, 5 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
21. - 23. umf. Sléttar.
24. umf. 28/29/30 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
25. umf. Slétt.
26. umf. 27/28/29 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
27. umf. Slétt.
28. umf. 26/27/28 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
29. umf. Slétt.
30. umf. 25/26/27 lykkjur sléttar, 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
31. umf. Slétt.
32. umf. 24/25/26 lykkjur sléttar. 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf.
33. umf. Slétt.
34. umf. 23/24/25 lykkjur sléttar. 2 lykkjur sléttar
saman aftan í lykkjuna, 3 lykkjur sléttar, 2 lykkjur
sléttar saman, slétt út umf. =36/38/40 lykkjur,
1 umf. Slétt.
Hægri
skálm:
Alveg eins og vinstri skálm og skref.
Bolur:
Prjónað slétt saman á prjón báðar
skálmarnar =118/124/132 lykkjur á prjóninum.
Halda áfram að prjóna garðaprjón 3
cm, endið á röngunni.
Op að
framan:
Fellið af 3 lykkjur í byrjun næstu tveggja umferða
= 112/118/126 lykkjur, haldið áfram þar til mælist
30/33/36 cm frá byrjun á stroffinu, endið á
röngunni.
Hægra
framstykki:
Prjónið 26/28/30 lykkjur slétt fram og til baka,
9/10/11 cm endið á röngunni.
Hálsmál úrtaka:
Fellið af 3 lykkjur í byrjun næsta prjóns.
Takið úr 1 lykkju hálsmálsmegin í
hverri umferð þar til 19/20/21 lykkja er eftir. Haldið
áfram þar til mælist 44/48/52 cm frá byrjun
á stroffinu, endið á röngunni.
Axla úrtaka:
Fellið af 10/10/11 lykkjur í byrjun næstu umferðar.
1 umf. Slétt. Fellið af síðustu lykkjurnar.
Bak:
Réttan snýr að og prjónið slétt
60/62/66 lykkjur þar til passleg lengd að öxlum á
hægra framstykki er náð, endið á röngunni.
Axla úrtaka:
Fellið af 10/10/11 lykkjur í byrjun næstu tveggja
umferða og 9/10/10 lykkjur í byrjun á eftirfarandi
tveggja umferða. Skiljið eftir lykkjurnar 22/22/24 sem eftir
eru á nælu.
Vinstra
framstykki:
Réttan snýr að, prjónið eins og hægra
framstykki speglað. Hálsmál og axla úrtöku.
Hægri
vetlingur:
***Fitja upp á prjón nr. 3,5 á aðallit
16 lykkjur.
1. umf. Rangsíðan prjónið slétt.
2. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 6 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
3. umf. Prjónið slétt.
4. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 8 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
5. umf. Prjónið slétt.
6. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 10 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
Eingöngu í stærðum 2 og 3
7. umf. prjónað slétt
8. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 12 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
3 umf. Sléttar í öllum stærðum.
Næsta umf. 1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju,
12/16/14 lykkjur sléttar, [auka 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
1/0/1 sinni, auka í 1 lykkju, 12/15/14 lykkjur slétt,
[auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] 1/0/1 sinni =32/34/36
lykkjur. Prjóna slétt 26/30/34 umferðir***. Skipt
yfir á prjóna nr. 3.
Næsta umf. Fitja upp 8/9/9 lykkjur, prjónið slétt
0/0/1 lykkju, [1 brugðið, 1 slétt] að síðustu
0/1/0 lykkjunni, prjónið brugðið 0/1/0 lykkjur.
Næsta umf. Prjónið slétt 0/1/0 lykkjur,
[1 lykkju brugðið, 1 slétt] 8/8/9 sinnum, snúið
við, prjónið aðeins þessar lykkjur. ****
prjónið stroff 1 umf.
1. hnappagats umf. Prjónið stroff 3 lykkjur, fellið
af 1 lykkju, prjónið stroff þar til 4 lykkjur eru
eftir, fellið af 1 lykkju, prjónið stroff til enda.
2. hnappagats umf. Prjónið stroff 3 lykkjur, aukið
í 1 lykkju, prjónið stroff þar til 3 lykkjur
eru eftir, aukið í 1 lykkju, prjónið stroff
3 lykkjur. Prjónið stroff 2 umferðir og fellið
af í stroffi ****
Hægri
ermi:
Með prjóna nr. 3 og réttsíðuna að
prjónið lykkjurnar sem eftir voru, fitjið upp 8/8/9
lykkjur, prjónið 0/0/1 slétt, [1 brugðið,
1 slétt] þar til 0/0/1 lykkjur eru eftir, prjónið
brugðið 0/0/1 lykkjur. =32/34/36 lykkjur.
***** prjónið stroff 4 umferðir.
Næsta umf. Rangsíðan, prjónið stroff
3/3/4 lykkjur, aukið í 1 lykkju, gerið [stroff 5/4/3
lykkjur, aukið í 1 lykkju] þar til 4/3/5 lykkjur
eru eftir prjónið stroff til enda. =38/42/46 lykkjur.
Skiptið yfir á prjóna nr. 3.5 og prjónið
garðaprjón jafnframt aukið út á báðum
endum í 3/4/4 hv. umferð þar til 62/66/70 lykkjur
eru á prjóninum, haldið áfram þar
til ermin mælist 14/16/18 cm frá byrjun stroffsins
endið á rangsíðunni. Fellið lykkjurnar
af.
Vinstri
vettlingur:
***Fitja upp á prjón nr. 3,5 á aðallit
16 lykkjur.
1. umf. Rangsíðan prjónið slétt.
2. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 6 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
3. umf. Prjónið slétt.
4. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 8 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
5. umf. Prjónið slétt.
6. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 10 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
Eingöngu í stærðum 2 og 3
7. umf. prjónað slétt
8. umf. [1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju, 12 lykkjur
slétt, auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] X2
3 umf. Sléttar í öllum stærðum.
Næsta umf. 1 lykkja slétt, auka í 1 lykkju,
12/16/14 lykkjur sléttar, [auka 1 lykkju, 2 lykkjur sléttar]
1/0/1 sinni, auka í 1 lykkju, 12/15/14 lykkjur slétt,
[auka í 1 lykkju, 1 lykkja slétt] 1/0/1 sinni =32/34/36
lykkjur. Prjóna slétt 26/30/34 umferðir***. Skipt
yfir á prjóna nr. 3.
Næsta umf. Prjónið brugðið 0/1/0 lykkjur,
[1 slétt, 1 brugðið] 8/8/9 sinnum, snúið
við, prjónið aðeins þessar lykkjur.
Næsta umf. Prjónið [1 slétt, 1 brugðin]
þar til 0/1/0 lykkjur eru eftir prjónið 0/1/0 sléttar.
**** prjónið stroff 1 umf.
1. hnappagats umf. Prjónið stroff 3 lykkjur, fellið
af 1 lykkju, prjónið stroff þar til 4 lykkjur eru
eftir, fellið af 1 lykkju, prjónið stroff til enda.
2. hnappagats umf. Prjónið stroff 3 lykkjur, aukið
í 1 lykkju, prjónið stroff þar til 3 lykkjur
eru eftir, aukið í 1 lykkju, prjónið stroff
3 lykkjur. Prjónið stroff 2 umferðir og fellið
af í stroffi ****
Vinstri
ermi:
Með prjóna nr. 3 og rangsíðuna að prjónið
lykkjurnar sem eftir voru, fitjið upp 8/9/9lykkjur, prjónið
0/1/1 brugðið, [1 slétt, 1 brugðin] þar
til 0/1/0 lykkjur eru eftir, prjónið stroff 0/1/0 lykkjur.
Næsta umf. Fitjið upp 8/8/9 lykkjur, prjónið
brugðið 0/1/1 lykkjur, [1 slétt, 1 brugðið]
þar til 0/1/1 lykkjur eru eftir prjónið 0/1/1 slétt.
=32/34/36 lykkjur.
***** prjónið stroff 4 umferðir.
Næsta umf. Rangsíðan, prjónið stroff
3/3/4 lykkjur, aukið í 1 lykkju, gerið [stroff 5/4/3
lykkjur, aukið í 1 lykkju] þar til 4/3/5 lykkjur
eru eftir prjónið stroff til enda. =38/42/46 lykkjur.
Skiptið yfir á prjóna nr. 3.5 og prjónið
garðaprjón jafnframt aukið út á báðum
endum í 3/4/4 umferð þar til 62/66/70 lykkjur eru
á prjóninum, haldið áfram þar til
ermin mælist 14/16/18 cm frá byrjun stroffsins endið
á rangsíðunni. Fellið lykkjurnar af.
Hálsmál:
Saumið saman axlarsauma. Prjónið upp á prjóna
nr. 3 slétt með réttsíðuna að og
með aðallit 19/20/21 lykkju í hálsmálinu
hægra megin, lykkjurnar af bakstykki, búið til
1 lykkju í miðju á baki, 19/20/21 lykkju í
hálsmáli vinstra megin =61/63/67 lykkjur.
1. stroff umferð 1 brugðin, [1 slétt, 1 brugðin]
til enda.
2. stroff umferð 1 slétt, [1 brugðin, 1 slétt]
til enda.
Prjónið stroff 4 umferðir í viðbót.
Næsta umf. Prjónið stroff 5 lykkjur og setjið
þessar 5 lykkjur á nælu, prjónið stroff
5/5/4 lykkjur, aukið út næstu lykkju [prjónið
stroff 9/6/7, aukið út næstu lykkju] þar
til 10/10/9 lykkjur eru eftir, prjónið stroff 5/5/4 lykkjur,
setjið síðustu 5 lykkjurnar á nælu.
=56/60/64 lykkjur.
Hetta:
Skiptið yfir á prjóna nr. 3,5 og prjónið
garðaprjón þar til hettan mælist 12/14/16
cm frá efstu brún á stroffinu endið á
rangsíðunni.
Toppurinn:
Næsta umf. Prjónið slétt 37/39/41 lykkju
prjónið 2 lykkjur saman og snúið.
Næsta umf. Prjónið slétt 19 lykkjur prjónið
2 lykkjur saman aftan í lykkjurnar, snúið.
Næsta umf. Prjónið slétt 19 lykkjur, prjónið
2 lykkjur saman og snúið.
Endurtakið síðustu tvær umferðir þar
til allar lykkjurnar eru komnar með af hvorri hlið. Geymið
lykkjurnar 20 á nælu.
Kantur
á hettu:
Með prjóna nr. 3, með réttsíðuna
að og aðallit prjónið stroff með lykkjurnar
5 af nælunni hægra megin, takið upp 26/29/32 lykkjur
hægra megin á hettunni, prjónið slétt
lykkjurnar 20 sem voru geymdar á hettunni og prjónið
saman miðjulykkjurnar tvær uppi (10 og 11.), takið
upp 26/29/32 lykkjur vinstra megin á hettunni og prjónið
stroff á lykkjurnar fimm á nælunni vinstra megin.
=81/87/93 lykkjur. Prjónið stroff 7 umferðir og fellið
af í stroffi.
Listar
að framan:
Hægri listi
Með prjóna nr. 3 með réttuna að og aðallit,
takið upp 85/93/101 slétta lykkju hægra megin frá
hettu og niður úr, prjónið stroff 3 umferðir
1. hnappagats umferð: prjónið stroff 3/5/7 lykkjur
[fellið af 1 lykkjum prjónið 11/12/13 lykkjur í
viðbót stroff] framkvæmið 6 sinnum, fellið
af 1 lykkju, prjónið stroff út prjóninn.
2. hnappagats umferð: Prjónið stroff en bætið
við einni fitjið upp eina lykkju á þeim stöðum
þar sem voru felldar út í umferðinni á
undan.
Prjónið stroff 2 umferðir og fellið af í
stroffi.
Vinstri listi: eins og sá hægri nema sleppa hnappagötunum.
Sólar:
(2 stk)
Fitjið upp á prjóna nr. 3,5 og aukalit 8 lykkjur.
Prjónið garðaprjón og aukið í 1
lykkju hvorum megin í annari umferð og fjórðu
umferð = 12 lykkjur á prjóninum. Prjónið
21 umferð, fellið af sitthvorum megin eins og þegar
aukið var í, þar til 8 lykkjur eru á prjóninum,
prjónið eina umferð slétta, fellið af.
Lófar:
(2 stk.)
Fitjið upp á prjóna nr. 3.5 og aukalit 8 lykkjur.
Prjónið garðaprjón og aukið í 1
lykkju hvorum megin í annari umferð og fjórðu
umferð = 12 lykkjur á prjóninum. Prjónið
13 umferðir, fellið af sitthvorum megin eins og þegar
aukið var í, þar til 8 lykkjur eru á prjóninum,
prjónið eina umferð slétta, fellið af.
Eyru:
(4 stk)
Fitjið upp á prjóna nr. 3.5 og aðallit 16
lykkjur. Prjónið garðaprjón 13 umferðir,
takið úr 1 lykkju sitthvorum megin annarar hverri næstu
3 umferðir, 10 lykkjur eftir á prjóninum prjónið
1 umferð slétt, fellið af.
Eyrnalíningar:
(2 stk.)
Fitjið upp á prjóna nr. 3.5 og aukalit 12 lykkjur.
Prjónið garðaprjón 7 umferðir, takið
úr 1 lykkju sitthvorum megin annarrar hverri næstu
umferðir þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóninum,
prjónið 1 umf. Slétt, fellið af.
Frágangur:
Saumið saman sokka og skálmasauma, saumið saman skrefið,
saumið saman skref og miðjusauma við lista að framan.
Saumið saman ermar og setjið ermar í, setjið
tölur á, saumið saman eyrnastykki og saumið
eyrnalíningar á, saumið á eyrun, sóla
og lófa.
|