|
Á þessum
námskeiðsvef er hægt að nálgast upplýsingar
um tölvukennslu í 6. bekk í Korpuskóla
fyrir veturinn 2002-2003
|
| Námskeiðslýsing:
|
|
Námsefnið
sem farið verður í á þessu námskeiði
byggist á því að læra að búa
til möppur og nota möppur í tölvum, læra
meira á umbrot í Publisher, t.d. útgáfa
skólablaðs
og læra að geta nýtt sér glærugerðarforrit
til að búa til kynningarefni og margmiðlunarefni.
|
| Forkunnátta:
|
| Til
þess að geta farið í gegnum þetta námskeið
er æskilegt að vera búinn að fara í gegnum
hin 5 námskeiðin. Það sem þarf að vera
til staðar í tölvunni eru forritin Windows explorer
sem nýtt er til að halda utan um möppurnar sínar
og skipuleggja skráarsöfnin sín, umbrotsforritið
Publisher og glærugerðarforritið Powerpoint til þess
að þú getir nýtt þér þetta
efni. |
| Hvernig
á að byrja: |
| Flettu
yfir flipanna hér uppi til að skoða hvernig námskeiðsvefurinn
er uppbyggður síðan ferðu inn á verkefni
og finnur fyrsta verkefnið og byrjar á því. |
|
|
|
©2002
Arndís Hilmarsdóttir
|