Tölvukennsla í 6.bekk Korpuskóla
home syllabus assignments materials community
Markmið námskeiðs :

1. Nemendur skilji að það er nauðsynlegt að skipuleggja vistun í tölvunni.

2. Nemendur skilji hvernig fréttabréf er gert í tölvu..

3. Nemendur skilji hvernig glærur eru gerðar í tölvu.

4. Nemendur skilji hvernig margmiðlunarefni er búið til í glærugerðarforriti.

Kennari:
Guðríður Sigurðardóttir, umsjónarkennari 6.GS, netfang: gurrys@ismennt.is
Námsefni:

Námsefnið sem farið verður í eru verkefni sem annars vegar eru hálftilbúinn verkefni sem umsjónarmaður námskeiðsins hefur útbúið og hins vegar eru unnin að fullu leiti eftir verkefnalýsingum. í umbrotsforritinu Publisher og glærugerðarforritinu Powerpoint.

Námsáætlun - tímaplan:

Hér ert þú að vinna m.a. með hálfunnin verkefni sem þú færð hjá kennaranum, sum verkefnin notar þú bara verkefnalýsingar sem þú færð undir flipanum verkefni.

Í hverjum tíma byrjar þú á því að gera 2 æfingar í Ritfinni áður en þú gerir þessi verkefni.

Verkefni/Dagsetn.

Hvað er viðfangsefnið:

Hvaða verkefni á að skila:

1. verkefnið Setja mynd inn á nafnspjald og útbúa það. Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 1 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.
2. verkefnið Gera auglýsingu. Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 2 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.
3. verkefnið Gera dagatal. Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 3 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.
4. verkefnið Gera fréttabréf. Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 4 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.
5. verkefnið Gera kynningu á þemaverkefni. Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 5 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.
6. verkefnið Gera margmiðlunarefni.

Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 6 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.

7. verkefnið Búa til forsíðu fyrir verkefnamöppuna sína í Publisher. Vistaðu verkefnið á innra netinu í möppunni þinni. Sendu það til kennarans í vefpósti. Prentaðu út fullunnið verkefni 7 eftir verkefnalýsingu og skilaðu kennaranum.

 

Verkefni:

Við vinnum í þessu námskeiði 7 verkefni sem gilda öll jafnt til lokaeinkunnar. Einnig verður próf í lok námskeiðisins í Publisher.

Þessi síða var síðast uppfærð January 29, 2003

©2002 Arndís Hilmarsdóttir