Námskrá Korpuskóla
Kynning á námskrá
Hvernig nota á vefinn
1. bekkur
2. bekkur
3. bekkur
4. bekkur
5. bekkur
6. bekkur
7. bekkur
8. bekkur

Val 9-10 bekk

Starfsfólk
Vefleiðangrar
Vefrallý
Verkefni á vef

 

© 1999 - 2002
Vefstjóri:
Arndís Hilmarsdóttir

Síðan var síðast uppfærð 23.04.2002

Tölvu- og upplýsingatækni fyrir 5.-7. bekk

Áfangamarkmið
Sjá Aðalnámskrá grunnskóla í upplýsinga- og tæknimennt bls. 15 og 28-29 og á vef Menntamálaráðuneytis.


Markmið Korpuskóla
Að nemendur verði sjálfstæðir í námi sínu, beri ábyrgð á því sem þeir eru að gera og geti unnið saman að ákveðnum verkefnum.

Leiðir og framkvæmd

Nemendur læri meðferð skanna, læri á töflugerðarforrit til að geta sett inn töflur og gröf í texta, byrji að læra að brjóta flókinn texta með myndum, læri að leita markvisst á netinu að upplýsingum til að nýta í ritgerðarvinnu. Þeir læri að búa til möppur og nota möppur í tölvum, áhersla á umbrot í Publisher, t.d. útgáfa skólablaðs. Nemendur geti nýtt sér glærugerðarforrit til að búa til kynningarefni. Einnig læri þeir að búa til einfaldan heimasíðuvef og flytja hann út á net, læri meðferð póstforrita til að hafa samskipti við nemendur og kennara innanlands og utan, læri hönnun og stýringar í gegnum tölvu í samvinnu við tæknimenntakennara.
Aðferðirnar til að ná þessum markmiðum eru að kenna nemendum að vinna verkefni í vafraforritum, ritvinnslu-forritum, töflugerðarforritum, myndbreytiforritum, umbrots-forritum. kerfisvafra, glærugerðarforritum, vefpóst-forritum, vefsíðugerðarforritum, ásamt ýmsum kennslu-forritum. Verkefnin eru ýmist unnin frá grunni eða nemendur fá hálfunnin verkefni þegar verið er að fara í ákveðna þætti. Kennslan fer ýmist fram í sérstakri tölvukennslu eða er samþætt inn í annað nám nemenda. Margir kennarar vinna saman að þessari kennslu, tölvukennari, skólasafnskennari, umsjónarkennari og sérgreina-kennarar.


Námsmat
Nemendur eru metnir á ýmsa vegu, öll verkefni sem nemendur gera eru metin þar sem m.a. er tekið tillit til sjálfstæði nemenda, samvinnu í ákveðnum verkefnum, viðleitni, frumleika, hegðun og áhuga. Lögð er áhersla á ábyrgð nemenda sjálfra, þeir fá ákveðna skiladaga á verkefnin og fá rúman tíma til að vinna þau en þurfa sjálf að bera ábyrgð á því að skila þeim tímanlega. Nemendur fara í könnunarpróf eftir ákveðna námsáfanga til að kanna hvort kennslan hafi skilað sér til allra nemenda. Einnig eru nemendur prófaðir í vélritun reglulega yfir veturinn. Ætlast er til þess að nemendur hafi náð 140 slögum á mínútu í vélritun eða einkunina 7 við lok 7. bekkjar.